Í dag á hann afi Gunni ofurskáti og frímerkjasafnari afmæli. Við óskum honum innilega til hamingju með daginn og vildum að við værum á Íslandi svo við gætum kíkt í heimsókn og etv platað ömmu Fanneyju til að baka góðu pönnukökurnar sínar í tilefni dagsins. Til hamingju með afmælið elsku afi, Iðunn sendir þér blauta kossa og knús frá Englandi og við hlökkum öll til að sjá þig í ágúst.
4 ummæli:
Þökk fyrir góðar kveðjur.
Hlakka til að sjá ykkur í ágúst
Kveðjur
Afi G
Við skálum fyrir afanum. G&T stéttin nýtist vonandi vel næstu dagana.
Til hamingju með daginn afi G. Ég skal skála fyrir þér í G og T, þegar ég er komin á leiðarenda, þó það rigni eldi og brennisteini.
Veðrið getur varla orðið svo slæmt að ekki sé hægt að skála. Góða skemmtun Gobba.
Skrifa ummæli