
Í gær fórum við öll til York að heimsækja Paul O´Higgins og fjölskyldu og borða með þeim sunnudagslamb. Paul var annar leiðbeinandinn að doktorsritgerðinni minni og hann og Louise konan hans eru góðir vinir mínir, og nú einnig Helga og Iðunnar. Paul og Louise eiga tvær dætur, Isabellu (Izzy) og Madalenu (Maddí) og þær voru bestu barnfóstrur sem hægt er að hugsa sér - þær útbjuggu hreiður handa Iðunni fyrst í stofunni og svo í eldhúsinu, báru í hana endalausan straum af leikföngum og voru með alls kyns skemmtiatriði fyrir hana í marga klukkutíma. Ég hef sjaldan séð jafn unga krakka sýna svo mikla þolinmæði. Iðunni þótti þær náttúrulega lang skemmtilegastar, og var sallaróleg og ánægð með lífið þó foreldrarnir væru úr augnsýn langtímum saman. Foreldrarnir voru einnig ánægðir að fá að ræða rannsóknir, stærðfræði, forritun og annað óskylt barnauppeldi. Sem sagt, yndislegur dagur og allir ánægðir með lífið.
2 ummæli:
Fyndið að sjá hvað litlaskottið nýtur þess að vera miðpunktur athyglinnar. Get ekki beðið eftir að fá að knúsa hana. 9 dagar þangað til amman kemur fljúgandi úr turninum.
Já hún var í essinu sínu - endalaus athygli og knús....ekkert jafnast samt á við ömmuknús!
Hlökkum til að fá þig!
Skrifa ummæli