sunnudagur, 8. júní 2008

Framkvæmdagleði - annar hluti!


Áður en hafist var handa við að leggja parkettið var annað sem meira lá á á framkvæmdalistanum: að útbúa Gin og Tonic aðstöðu fyrir ömmu Gobbu í sumarkjólnum! Því fórum við í dag og keyptum úrvals hellur og lögðum þessa líka fínu G&T stétt undir garðbekkinn svo amma þurfi ekki að vaða forinn í kjólnum fína til að njóta veiga í sólinni. Helgi stóð sig að venju eins og hetja, og stéttin var tilbúin eftir einungis 4 1/2 tíma vinnu (yfirstandandi knattspyrnuhátíð Austurríkismanna er dugleg að drífa menn áfram við svona verk - allt varð að vera klárt áður en boltinn byrjaði!), sem boðar gott fyrir parkettvinnuna. Þess ber að geta að það er ekki húsfreyja sem pínir hann í alla þessa þrælavinnu - hann er bara með ákveðna hugmynd um hvernig hann vilji hafa hlutina, og er duglegur að drífa sig af stað og koma þeim í verk. Svo fær hann endalaust knús og kossa og bjór að launum....

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er svo aldeilis bit og hlessa á dugnaðinum í tengdasyninum. Það verður aldeilis munur að sitja þarna í sólinni (vonandi) með sitt G og T.

Nafnlaus sagði...

Helgi, mundu bara því meira sem þú gerir núna þeim mun meira mun bíða þín síðar......

Nafnlaus sagði...

...jamm..og meiri bjór sko! Það þarf alveg að leggja parket á fleiri stöðum ;)

Nafnlaus sagði...

Slakaðu á Helgi...þeta lætur okkur hina líta illa út!

Nafnlaus sagði...

þetta er allt í lagi. Fjölskyldan veit að þið Örvar eru bara for entertaining ;)