Loksins, loksins lét sólin sjá sig! Við urðum náttúrulega að skrúfa fyrir rigninguna fyrst turnamman er búin að kaupa sér sumarkjól (sjá komment við síðust færslu) sérstaklega fyrir heimsóknina hingað í Barnarðskastala. Nú vonum við bara að góða veðrið haldi sér fram yfir komu hennar í lok næstu viku. Þau Iðunn og Helgi höfðu það voða notalegt í gær, fóru í göngutúr í góða veðrinu og þegar ég kom heim úr vinnunni sátu þau í garðinum og nutu sólarinnar. Ég dreif þau reyndar með mér í annan göngutúr, sem hefur líklega reynt full mikið á þau, því bæði sofnuðu uppúr sjö í gærkveldi og rumskuðu ekki fyrr en 12 tímum síðar! Hugsa ég að vinir og vandamenn Helga þekki þarna sinn mann!
Annars eru þær gleðifréttir mestar að ég sé fram á að ljúka prófyfirferð í dag, og verð þá búin að lesa u.þ.b. 1000 handskrifaðar ritgerðir síðan ég byrjaði á fyrsta staflanum. Hallelúja fyrir því!
Sumarkveðjur úr morgunsólinni.
2 ummæli:
Þetta líst mér betur á. Sól, sól skín á mig osfrv.
Til hamingju Una mín að vera komin niður úr bunkanum.´Hlakka til að koma í G&T á garðbekknum.
Þarna þekki ég hann Helga minn ;)
Gott að sólin er loksins kominn hjá ykkur - ætli hún hafi ekki yfirgefið Ísland og komið til ykkar því hér er komið suddaveður :S
Kv,
Friða
Skrifa ummæli