þriðjudagur, 10. júní 2008

My daughter is a Neanderthal specialist!


Dóttirin kynntist Homo habilis um daginn, en nú var loks komin röðin að Neanderdalsmanninum, Homo neanderthalensis. Hér að ofan má sjá Iðunni grandskoða afsteypu af unglingnum frá Le Moustier og virðist hún nokkuð ánægð með kauða. Gloggir lesendur kannast e.t.v. líka við bolinn sem barnið er í: á hann er ritað "My mother is a Neanderthal" og verður að segjast að hann vakti afskaplega mikla kátínu í vinnunni minni í dag.... Þennan fína bol gáfu yndislegu systkyni mín og makar okkur Helga í brúðkaupsgjöf..... Helgi á annan sem á stendur "My wife is a Neanderthal", og finnst mér hann nota hann helst til oft.
Dagurinn í dag varð ansi langur, fundarseta fyrir okkur Iðunni fram að hádegi (hún fékk reyndar að dveljast hjá Pat og Judith samstarfskonum mínum í afskaplega góðu yfirlæti þegar hún gafst upp á fundinum), og svo yfirseta yfir einhverjum tölvutóta sem var að reyna að bjarga gögnum af vinnutölvunni minni áður en harði diskurinn gefur sig alveg. Tölvutótinn var sérlega óskemmtilegur og vildi ekki einu sinni brosa framaní Iðunni; við ályktuðum að hann hefði líklega farið í það sem ég vil kalla "Personality Bypass Operation" (heilinn í mér er of þreyttur til að finna íslenska þýðingu á því). Einu svipbrigðin sem sáust á honum þennan 3 1/2 tíma sem hann sat inni á skrifstofunni minni var þegar ég gafst endanlega upp á að bíða eftir að hann yrði búinn og dró fram brjóstið og gaf Iðunni fyrir framan hann......hann saup þvílíkar hveljur og tel ég að hann verði lengi að jafna sig eftir eftirmiðdaginn með Neanderdalsmömmunni og dóttur hennar.

Í framkvæmdafréttum er það helst að komið er nýtt garðhlið - Helgi þurfti samt ekki að smíða það, hann er í framkvæmdafríi í dag, svo Jóhannes og Örvar geta varpað öndinni léttar...í bili.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, ég trúi að Iðunn mín hafi lífgað upp hið háakademiska umhverfi í Neanderdalsbolnum sínum, enda er hún örugglega sætasti litli Neanderdalari, sem um getur. Mér er næstum farin að ofbjóða framkvæmdagleðin á bænum. Það er ekki nauðsynlegt að endurbyggja húsið frá grunni þó tengdó sé að koma í heimsókn, en ég kann sannarlega að meta G og T aðstöðuna. Ég er búin að kaupa 500 grisjur til að þvo barninu um botninn og 2 pakka af Kaffitárskaffi svo allir verði ánægðir. 2 dagar til stefnu!!!!!!!

Una sagði...

Grisjur og kaffi - what more could you want in life!?

Annars lítur því miður út fyrir að G og T aðstaðan nýtist lítið fyrstu dagana sem þú ert hér......ég ætti kannski að kaupa útihitara og risaregnhlíf? En Iðunn er tilbúin með kossa og knús og það má alltaf drekka ginið inni!
Hlökkum mikið til að sjá þig!

Nafnlaus sagði...

jamm...og nú er bara einn dagur til stefnu í að amman fari að súpa G og T og Hildur sleppi köttunum út úr turninum. Vorum við ekki að stíla inn á að Stella yrði ólett í ár eða?

Nafnlaus sagði...

Enginn betri timi fyrir kettlinga, mamma tharf enhvern felagsskap a medan eg er i burtu. Gleymdi samt ad taka bolinn minn med mer i ferdina, hefdi orugglega vakid mikla lukku! Eda kannski ekki...