laugardagur, 7. júní 2008

Framkvæmdagleði í Victoria Road

Hér að ofan ber að líta helminginn af gólfefninu sem búið er að kaupa á borðstofu og stofu 11 Victoria Road. Gegnheilt eikarparkett - við erum svo flott á því hér á bæ. Iðunn er þarna með til viðmiðunar svo allir geti gert sér grein fyrir hvað þetta er svakalega mikið parkett sem Helgi á eftir að púsla, negla og líma. Við komum svo með "update" seinna svo fólk geti fylgst með framgangi framkvæmdanna.
Einnig má sjá á þessari mynd, og eins hinni hér að neðan að höfuð heimilisins lét sér ekki Marks og Spencer nærbuxurnar nægja og hefur nú fjárfest í ekta tweed sixpensara að hætti heimamanna - When in Rome......

5 ummæli:

Eszter Tóth sagði...

Rosalega eruð þið sætt!
Kveðja frá Indverskan monsun!

Eszter

Eszter Tóth sagði...

Rosalega eruð þið sætt!
Kveðja frá Indverskan monsun!

Eszter

Nafnlaus sagði...

Wanted! The Legendary "Barnard Castle Arsonist". Approach with caution, may be armed with matches.

Nafnlaus sagði...

Já, hann er dálítið óárennilegur strákurinn í þessari múnderingu, ef maður vissi ekki hvílíkur gæðadrengur hann er í raun. Bara 4 dagar í innrás tengdamömmu og eins gott að vera við öllu búinn. Á nokkuð að fara að leggja þetta parkett meðan ég er í heimsókn ?
Una er svo dugleg að blogga að maður hefur ekki undan að skrifa athugasemdir. Byrja alltaf daginn á að kíkja á bloggið hjá Iðunni og Diljá og svo Besserwisserinn, sem er reyndar orðin frekar latur.

Nafnlaus sagði...

Helgi þú ert rosalega flottur. Gangi þér vel með parketið, kallinn minn.