föstudagur, 24. apríl 2009

Fréttaskot


Hér er búið að vera nóg að gera síðustu daga. Iðunn fékk skyndimagapest á miðvikudagskvöld, allt gekk upp og niður og mikið þvottastand sem því fylgdi, en stelpan var reyndar mjög hress og hitalaus, og orðin alfrísk aftur eftir ca. 12 tíma. Mamman er búin að sitja sveitt yfir ritgerðum og á eftir að fara yfir 40 til viðbótar yfir helgina, svo það mun ekki gefast mikill tími til hvíldar í þessari viku. Hér er búið að vera yndislegt veður alla vikuna en á reyndar að fara að rigna á morgun.....týpískt!
Iðunnin er að taka miklum framförum í göngumálum - 6 skref í fyrradag, fleiri í dag, svo hún verður líklega farin að hlaupa um allt í mai. En ef hún þreytist á því má alltaf hvíla sig í nýju ferðakerrunni sem sjá má á myndinni hér að ofan (Iðunn var hálflasin þegar myndin var tekin og því ekkert sérstaklega kát á svip). Gamla ferðakerran var orðin ansi lúin eftir margar flugferðir svo við fjárfestum í sterkari regnhlífakerru frá Maclaren. Takið eftir að kerran fylgir að sjálfsögðu eplaþema familíunnar!
Nóg í bili - Gleðilegt sumar!

mánudagur, 20. apríl 2009

Framkvæmdagleði að vori



Eftir ansi gott veður í gær (sól, logn en kannski ekki alveg nógu mikinn hita), gerði loks ekta yndislegt vorveður í dag - logn, sól, jafnvel hlýtt í skugganum og mamman fór úr bæði sokkabuxum og gammósíum. Iðunn sprangaði um allt á tásunum og meira að segja Helgi fór í stuttermabol! Við nýttum þessa yndislegu daga til að taka annað skurk í garðinum - losa okkur við allt grasið og útbúa malarsvæði undir matarborð og stóla. Nú er allt tilbúið og mölin kemur á morgun. Þetta er að verða hinn prýðilegasti garður.
Iðunn naut sólarinnar og útiverunnar, en var hálf hissa á þessu skóleysi, enda skór uppáhaldshlutir heimasætunnar. Spáð er hlýnandi veðri næstu daga...

laugardagur, 18. apríl 2009

Sandkassablogg


Iðunn og eplin fjárfestu í sandkassa.
Sandkassinn er að sjálfsögðu eplalaga.
Lítil fjárfesting sem þegar hefur borgað sig margfalt í ávaxtaðri gleði!

Svo er náttúrulega löngu kominn tími á vídjó - hér er eitt heldur tíðindalítið þar sem þó má sjá Iðunnina njóta sandkassans...vinsamlegast skrúfið niður í hljóðinu til að þurfa ekki að hlusta á bullið í mömmu myndasmið.

fimmtudagur, 16. apríl 2009

Allt er steikt sem vel er bleikt...



Eins og margir vita er húsmóðirin á heimilinu ekki sérstaklega hrifin af bleikum barnafötum. Hins vegar eru auðvitað undantekningar á þeirru reglu eins og öllum öðrum. Hvað er flottara en vesti frá ömmu FK og samfella með BLEIKUM dráttarvélum - ubercool!!

Dampland


Við erum komin aftur til Englands....hér hefur verið þoka og skítakuldi síðan við komum heim, rakinn alveg að fara með okkur eftir sólina í Svíþjóð - ég sagði við Donnu vinkonu mína í gær að ég er að spá í að endurnefna England Dampland, eða Rakaland, því rakur og grár hversdagsleikinn einkennir allt hér sem stendur.
Flugið heim gekk vel, enda ekki nema 1 1/2 tími í lítilli rellu beint til Newcastle, og Iðunnin svaf alla leiðina sem gerði ferðina einnig auðveldari. Ekki var verra að við vorum komin snemma heim - alla leið heim í hús fyrir klukkan ellefu um morguninn, svo við áttum allan daginn heima. Iðunn byrjaði svo aftur á leikskólanum sínum í gær, en var víst ansi rellin og lítil sér eftir að hafa fengið að vera hjá mömmu og pabba í 2 vikur. Ég held að það hafi líka háð henni svoldið að hún hefur tekið miklum framförum í orðaforða síðustu vikurnar og þó foreldrarnir skilji það sem hún segir áttu fóstrurnar erfitt með íslenskuna, sem er ansi frústrerandi fyrir litla snillinga. Annars er búið að ákveða að Iðunn færist upp um deild 5.mai, á afmæli afa Viðars og fæðingardegi Karls Marx. Hún er orðin svo áberandi miklu þroskaðri en litlu krakkarnir að hún hefur eflaust gott af að umgangast stærri krakka og leika sér við þá.

Ég hef ekki tekið neinar myndir síðan við komum aftur, svo ég læt í staðin fylgja vormynd af Iðunni í Svíaríki.

PS Smá samantekt á 16 mánaða orðaforðanum: skór (og shoe), takk (og thank you), kisa, voff voff, mjá, pabbi, mamma, skeið, amma, afi, NEI, eyra, nebbi, hár, róró (þegar syngja skal róró á selabát) na na (með bendingum og merkir Iðunn vill þetta), namm namm (um mat), halló, hæ, bæ (þessar ensku slettur lærir hún á leikskólanum, ekki hér heima), datt, allt bú(ið). Eflaust fleira sem ég man ekki eftir í bili.

laugardagur, 11. apríl 2009

Krakkar!


Hér var mikið fjör í gær þegar Tina kom með krakkana sína. Iðunni þótti þau svooooo skemmtileg, og þá sérstaklega Emma. Hún elti Emmu um allt hús og vildi gera allt eins og hún - hoppa, dansa, vera í boltaleik. Eina sem skyggði á gleðina var þegar litla daman skall í gólfið og meiddi sig á vörinni, en sú sorg entist stutt enda engin leið að vera stúrin þegar krakkar eru í heimsókn!

föstudagur, 10. apríl 2009

Loksins nýjar myndir


Nú er mamman loksins búin að setja nýjar myndir á myndasíðuna svo ömmurnar geta tekið gleði sína á ný.
Annars er allt gott að frétta héðan frá Svedala. Á miðvikudaginn fórum við til Malmö og mamma verslaði heilan poka af fötum á Iðunni enda er hún næstum vaxin upp úr öllum fötunum sínum, og ekekrt hægt að kaupa í UK nema bleikt bleikt og aftur bleikt.
Í gær var skírdagur og þá fórum við í heimsókn til Höllu stóru frænku í Hvalsö. Þangað var gott að koma eins og alltaf. Veðrið lék við okkur svo við vorum í garðinum næstum allan tíman og Iðunn naut sín vel - skreið um allan garð að skoða blóm og runna.
Sem sagt allt í lukkunnar velstandi.

þriðjudagur, 7. apríl 2009

Svedala blogg


7.apríl Fæðingardagur afa Braga

Þá er eplafamilían komin til Sviþjóðar eftir langt og strangt ferðalag. Iðunn var voða góð alla leiðina og heillaði heilan helling af flugfreyjum, þar á meðal eina áhugamanneskju um brjóstagjöf, sem bar óumbeðin marga lítra af vatni í eplamömmuna til að hún missti nú ekki mjólkina af uppþornun. Ferðin tók nú samt greinilega á - fyrstu nóttina sína í Svíaríki svaf Iðunn í heila 14.5 tíma - geri aðrir betur!
Afi mætti á Hafnarflugvöll til að sækja okkur, kominn með leigustól í bílinn, sérstaklega fenginn handa dömunni. Í dag höfum við svo bara tekið því rólega. Skoðuðum nýja rólóinn rétt við afahús og röltum aðeins um Svedala. Á rólónum var líka allt fullt af krökkum sem Iðunn var voða spennt fyrir. Nú liggur Iðunnin inní rúmi og á að fara að leggja sig en mér heyrist sem það gangi hægt - það er greinilega allt of spennandi að vera í heimsókn hjá afa Viðari og ömmu Titti.
Það er stuð að róla með pabba og afa Viðari

Fína bríókerran sem við fengum lánaða í vinnunni hennar ömmu Tittíar - þetta er nýtísku útgáfa af gömlu randakerrunni hennar ömmu Fanneyjar sem hún er búin að eiga í á fjórða áratug

Iðunn náði sér í þessa fínu kúlu strax fyrsta kvöldið....gleymdum að láta hana ganga um með hjálm eins og sænsku börnin :-)

Iðunn kennir afa Viðari að vaska upp

Rosa flottur farkostur!

laugardagur, 4. apríl 2009

Öppdeit frá Ameríkunni


Héðan er allt gott að frétta. Við skiptumst á um að sækja ráðstefnu og labba um bæinn, og höfum verið ansi heppin með veður til þess. Á hverjum degi hefur verið spáð úhellisrigningu og/eða snjókomu en ekki nein úrkoma sjánleg enn, þó rok sé mikið eins og borgin er fræg fyrir. Allt þetta borgarrölt er víst mjö þreytandi - í gær sofnaði Helgi fyrstur allra kl sjö að kveldi, Iðunn klukkutíma síðar og eftir að hafa setið ein uppi í smá tíma gafst mamman bara upp á einsemdinni og lagði sig með þeim. Enda er nýjasta trikk Iðunnar að herma eftir hrotunum í pabba sínum!


föstudagur, 3. apríl 2009

Iðunn í Ameríkunni


Jæja loksins komið blogg frá Chicago.
Við erum nú búin að vera hér í tvo daga og allt gengur mjög vel. Flugið gekk framar vonum, þó Iðunn hafi reyndar verið uberhress til klukkan 10 um kvöldið - sem sagt hálfa leiðina til Chicago, og foreldrarnir alveg komnir á síðasta snúning að elta hana á ofurskriði um alla vél. Hins vegar öskraði hún ekki og æpti eins og hinir krakkarnir í vélinni.
Hótelið okkar er frábærtí alla staði. Mátulega stórt og herbergið snyrtilegt, óvenju rúmgott og ansi mikið flottara en á ráðstefnuhótelinu (Sheraton). Starfsólkið allt viðkunnalegt og Iðunn búin að eignast marga vini.
Fyrsta daginn tókum við því bara rólega. Tókum svona íslendingarúnt - semsagt verslunarferð í Target, Old Navy og svipað....keyptum samt ekki mikið, en Iðunn fékk nýja inniskó, mamman sumarnáttbuxur og pabbinn stuttbuxur. Við komum aftur upp á hótel um fjögur og Iðunn reyndum að leggja Iðunni þar sem við þurftum að fara í móttöku um kvöldið. Iðunn sofnaði ekki fyrr en hálf sex, og þegar reynt var að vekja hana einum og hálfum tíma seinna var hún svo rotuð að engin leið var að ná henni á fætur. Það endaði með því að við skiptum á henni, klæddum í útiföt, settum í kerru, brunuðum á milli hótela,fórum á móttöku, spjölluðum mikið, löbbuðum heim, klæddum hana úr og settum í rúmið, án þess að hún rumskaði í einn einasta sinn - ansi lúin stelpa! Hún bætti þetta reyndar upp með að vakna eldhress fyrir fjögur í morgun...foreldrarnir ekki alveg jafn hressir.
Í dag var ráðstefnudagur....ég fór á fyrirlestra, Helgi kynnti forritið sitt og innámilli heillaði Iðunn ráðstefnugestina og heilsaði upp á marga gamla vini frá Vín, Greifswald og víðar. Forritið hans Helga gerði mikla lukku, og hann græddi líka mikið á að tala við þá sem komu að skoða það. Meðal annarra var þar kominn Benni samlandi okkar sem er að gera marga skemmtilega hluti í Calgary. Burritos í kvöldmatinn og svo rólegt kvöld á hótelinu.
Nóg í bili - nokkrar myndir fylgja.

Pippi chillar á hótelinu, hóteldaman bjó um og kom honum svona vel fyrir

Iðunn furðar sig á 42 tommu sjónvarpinu....

Grautarát á hóteli

Pabbi sýnir áhugasömum forritið sitt....takið eftir að maður þarf greinilega að eiga dökkbláan blazer til að vera gjaldgengur í hóp formfræðinörda

Jább - skýjakljúfar og ameríski fánin - við erum augljóslega í sjíkagó


Mamma og Iðunn taka því rólega á hótelinu