föstudagur, 3. apríl 2009

Iðunn í Ameríkunni


Jæja loksins komið blogg frá Chicago.
Við erum nú búin að vera hér í tvo daga og allt gengur mjög vel. Flugið gekk framar vonum, þó Iðunn hafi reyndar verið uberhress til klukkan 10 um kvöldið - sem sagt hálfa leiðina til Chicago, og foreldrarnir alveg komnir á síðasta snúning að elta hana á ofurskriði um alla vél. Hins vegar öskraði hún ekki og æpti eins og hinir krakkarnir í vélinni.
Hótelið okkar er frábærtí alla staði. Mátulega stórt og herbergið snyrtilegt, óvenju rúmgott og ansi mikið flottara en á ráðstefnuhótelinu (Sheraton). Starfsólkið allt viðkunnalegt og Iðunn búin að eignast marga vini.
Fyrsta daginn tókum við því bara rólega. Tókum svona íslendingarúnt - semsagt verslunarferð í Target, Old Navy og svipað....keyptum samt ekki mikið, en Iðunn fékk nýja inniskó, mamman sumarnáttbuxur og pabbinn stuttbuxur. Við komum aftur upp á hótel um fjögur og Iðunn reyndum að leggja Iðunni þar sem við þurftum að fara í móttöku um kvöldið. Iðunn sofnaði ekki fyrr en hálf sex, og þegar reynt var að vekja hana einum og hálfum tíma seinna var hún svo rotuð að engin leið var að ná henni á fætur. Það endaði með því að við skiptum á henni, klæddum í útiföt, settum í kerru, brunuðum á milli hótela,fórum á móttöku, spjölluðum mikið, löbbuðum heim, klæddum hana úr og settum í rúmið, án þess að hún rumskaði í einn einasta sinn - ansi lúin stelpa! Hún bætti þetta reyndar upp með að vakna eldhress fyrir fjögur í morgun...foreldrarnir ekki alveg jafn hressir.
Í dag var ráðstefnudagur....ég fór á fyrirlestra, Helgi kynnti forritið sitt og innámilli heillaði Iðunn ráðstefnugestina og heilsaði upp á marga gamla vini frá Vín, Greifswald og víðar. Forritið hans Helga gerði mikla lukku, og hann græddi líka mikið á að tala við þá sem komu að skoða það. Meðal annarra var þar kominn Benni samlandi okkar sem er að gera marga skemmtilega hluti í Calgary. Burritos í kvöldmatinn og svo rólegt kvöld á hótelinu.
Nóg í bili - nokkrar myndir fylgja.

Pippi chillar á hótelinu, hóteldaman bjó um og kom honum svona vel fyrir

Iðunn furðar sig á 42 tommu sjónvarpinu....

Grautarát á hóteli

Pabbi sýnir áhugasömum forritið sitt....takið eftir að maður þarf greinilega að eiga dökkbláan blazer til að vera gjaldgengur í hóp formfræðinörda

Jább - skýjakljúfar og ameríski fánin - við erum augljóslega í sjíkagó


Mamma og Iðunn taka því rólega á hótelinu

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég kann að meta þessa hóteldömu, ég raðaði líka alltaf öllu svona þegar ég var hóteldama!
diljá

Nafnlaus sagði...

góðar og skemmtilegar myndir :)

kv,
Hildur

Nafnlaus sagði...

Gaman, gaman að fá Iðunnarblogg frá Ameríku! Hún er svo mikil heimsdama þetta litla stýri. Glæsilegt hótel og flottar náttbuxur. Meira af því sama, takk.
Amman heimtufreka

Nafnlaus sagði...

Iðunn kann lagið á þessu. Hún heillar alla í Ameríku líka. Og Helgi fer létt með að kenna formfræðingum heimsins hvernig eigi að vinna verkin.
Ég er ánægð með ykkur.
Montna amman