Héðan er allt gott að frétta. Við skiptumst á um að sækja ráðstefnu og labba um bæinn, og höfum verið ansi heppin með veður til þess. Á hverjum degi hefur verið spáð úhellisrigningu og/eða snjókomu en ekki nein úrkoma sjánleg enn, þó rok sé mikið eins og borgin er fræg fyrir. Allt þetta borgarrölt er víst mjö þreytandi - í gær sofnaði Helgi fyrstur allra kl sjö að kveldi, Iðunn klukkutíma síðar og eftir að hafa setið ein uppi í smá tíma gafst mamman bara upp á einsemdinni og lagði sig með þeim. Enda er nýjasta trikk Iðunnar að herma eftir hrotunum í pabba sínum!
2 ummæli:
Takk, takk fyrir meira blogg og fleiri myndir. Hlakka til að heyra í litla hrotuherminum. Hér er alger sumarblíða bæði í gær og dag, 8-9 stiga hiti. Yndislegt.
Amman vorglaða
Ég hef enga trú að að Helgi hrjóti. Hann er bara að anda. Iðunn mín, það er bannað stríða pabba sínum!
FK amman
Skrifa ummæli