þriðjudagur, 7. apríl 2009

Svedala blogg


7.apríl Fæðingardagur afa Braga

Þá er eplafamilían komin til Sviþjóðar eftir langt og strangt ferðalag. Iðunn var voða góð alla leiðina og heillaði heilan helling af flugfreyjum, þar á meðal eina áhugamanneskju um brjóstagjöf, sem bar óumbeðin marga lítra af vatni í eplamömmuna til að hún missti nú ekki mjólkina af uppþornun. Ferðin tók nú samt greinilega á - fyrstu nóttina sína í Svíaríki svaf Iðunn í heila 14.5 tíma - geri aðrir betur!
Afi mætti á Hafnarflugvöll til að sækja okkur, kominn með leigustól í bílinn, sérstaklega fenginn handa dömunni. Í dag höfum við svo bara tekið því rólega. Skoðuðum nýja rólóinn rétt við afahús og röltum aðeins um Svedala. Á rólónum var líka allt fullt af krökkum sem Iðunn var voða spennt fyrir. Nú liggur Iðunnin inní rúmi og á að fara að leggja sig en mér heyrist sem það gangi hægt - það er greinilega allt of spennandi að vera í heimsókn hjá afa Viðari og ömmu Titti.
Það er stuð að róla með pabba og afa Viðari

Fína bríókerran sem við fengum lánaða í vinnunni hennar ömmu Tittíar - þetta er nýtísku útgáfa af gömlu randakerrunni hennar ömmu Fanneyjar sem hún er búin að eiga í á fjórða áratug

Iðunn náði sér í þessa fínu kúlu strax fyrsta kvöldið....gleymdum að láta hana ganga um með hjálm eins og sænsku börnin :-)

Iðunn kennir afa Viðari að vaska upp

Rosa flottur farkostur!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá litlu elskuna í enn nýju umhverfi. Alltaf jafn glöð og ánægð með lífið.Ömmu langar líka að fá hana í heimsókn.
Amman Iðunnarlausa

Nafnlaus sagði...

Heimshornaflakkarinn litli
Hún er orðin veraldarvön, gaman að fylgjast með nýjum ævintýrum í ýmsum löndum.
FK amman