Nú er mamman loksins búin að setja nýjar myndir á myndasíðuna svo ömmurnar geta tekið gleði sína á ný.
Annars er allt gott að frétta héðan frá Svedala. Á miðvikudaginn fórum við til Malmö og mamma verslaði heilan poka af fötum á Iðunni enda er hún næstum vaxin upp úr öllum fötunum sínum, og ekekrt hægt að kaupa í UK nema bleikt bleikt og aftur bleikt.
Í gær var skírdagur og þá fórum við í heimsókn til Höllu stóru frænku í Hvalsö. Þangað var gott að koma eins og alltaf. Veðrið lék við okkur svo við vorum í garðinum næstum allan tíman og Iðunn naut sín vel - skreið um allan garð að skoða blóm og runna.
Sem sagt allt í lukkunnar velstandi.
2 ummæli:
Sætar saman. Höllu barnakerlingu hefur ekki þótt leiðinlegt að hitta Iðunni sína.
FK
like the orange!
kv,
Hildur
Skrifa ummæli