
Í dag fórum við til Darlington og gerðum ansi góð kaup.
Versluðum jólagjafir handa ýmsum, aðallega smáum vinum og ættingjum. Keyptum ECCO skó á Iðunni (2 nr of stórir, en ætlaðir til nota heima á Íslandi, yfir ullarsokka, en þó aðallega í vor þegar hún verður vonandi farin að ganga) á útsölu á 10 pund, bók handa henni á 2,99 pund; afmæliskjól á afmælisstelpu (allir muna náttúrulega laaaaaaangmerkilegasta dag desembermánaðar - 11.des - afmæli Iðunnar og Braga frænda!); ferðatösku til að koma jólagjöfum heim á Frón; og kerti til að lýsa upp vetrarmyrkrið.

Einnig sóttum við lestarmiðana hennar Eszterar sem við setjum í póst til London á morgun svo hún geti komið í heimsókn um næstu helgi. Við hlökkum öll mikið til enda orðið ansi langt síðan hún fór til Indlands í febrúar.
Húsfrúin er enn ómöguleg í öxlinni og getur hvorki lift dóttur sinni né ekið bíl, og Helgi hefur orðið að taka á sig öll heimilisstörf og alla barnaumönnun. Hann er samt drengur góður og kvartar ekki þó þetta sé náttúrulega ansi mikil vinna. Verra er að heimilið er enn undirlagt bókum og húsgögnum og Helgi einn getur ekki flutt stærstu húsgögnin. Ég vona bara að allt verði komið í lag áður en Eszter kemur eftir tæpa viku.
Annars er svo sem gott hljóð í okkur eins og alltaf - það þýðir ekki að láta svona smámuni á sig fá!
Myndirnar með póstinum eru honum algjörlega ótengdar, bara myndir af Sunnudagsmorgni í Victoria Road...nema myndin af mér og Iðunni að lesa nýju bókina...
1 ummæli:
Þetta er ekki nógu gott ástand á þér, Una mín. Þú þarft kannski að láta kíkja á öxlina, ef þetta fer ekki að lagast.Ég eyddi deginum í tiltekt í herberginu hennar Diljár svo allt verði fínt og fallegt, þegar heimasætan snýr aftur. Svo buðu Örvar og Katla mér í mat. Það var fjarska vel þegið og gaman að hitta þau öll. Búin að taka fram aðventustjakan og kveikja á fyrsta kertinu. Stórt ömmuknús til litlu Iðunar, sem er svo sposk á svipinn í baðinu.
Amman í tiltektinni.
Skrifa ummæli