
Loksins loksins komin gólf í bæði stofu og borðstofu...og þröskuldar, og listar, og hurðirnar aftur á hjarirnar - jibbíjei!! Sjáið þið bara hvað Iðunn er glöð á myndinni hér að ofan. Hún var að hjálpa mömmu sinni að sortera óhreina þvottinn á svefnherbergisgólfinu innan um bækur og borðstofustóla. Bráðum bráðum, um leið og við getum ryksugað og sett öll stærri húsgögnin á sinn stað verður kominn frábær skriðvöllur fyrir dömuna sem hefur þurft að sitja í stól eða fangi í allt of marga daga og vikur.
Annars er Iðunn búin að læra að gnísta tönnum......þó ekki séu komnar nema ein í efri góm og tvær í neðri. Foreldrarnir vona að hún aflæri það aftur sem allra fyrst!
-------------------------------------------------------------------------
PS. Hér gleymdist aðal saga dagsins af dóttur okkar. Iðunn svipast um í stofunni - sér hauskúpu (ekki óalgengt á þessu heimili). Aldrei þessu vant uppveðrast hún öll við þetta- bendir á kúpuna og endurtekur í sífellu - tsss tssss (kisa á Iðunnarmáli, og aldrei notað um neitt nema kisur). Mikið rétt,kúpan sú arna er hauskúpa af ketti. Snillingur þetta barn, og greinilega dóttir móður sinnar höfuðskeljasérfræðingsins.
3 ummæli:
Mjög fyndin saga af dóttur Neanderthalkonunnar. Sver sig svo sannarlega í móðurættina stúlkan sú. Til hamingju með nýja gólfið öll sömul. Nú er tækifæri til að fara að ganga um gólf Iðunn litla.
Amman og kisan ó turninum.
Já hún er sannarlega snillingur stúlkan en það eru dálítið undarlegar aðstæður að alast upp innan um hauskúpur manna og dýra. Þetta virkar örugglega hvetjandi.
fk
Til hamingju með verklokin. Ég kannast eitthvað við að lifa í drasli á meðan verkin standa yfir, og það er alltaf gaman að klára...
Skrifa ummæli