þriðjudagur, 21. október 2008

2*róló er gott mál


Í dag fékk Iðunn að fara tvisvar á sama rólóinn. Hún varð sem sagt að vera heima í dag vegna gubbupestarinnar, en var orðin ansi leið á heimilislífinu í Victoria Road. Svo pabbi og Iðunn fóru á róló....og þegar mamma kom heim fóru mamma og Iðunn á róló. Rosa stuð ef maður er 10 mánaða og með gullfiskaminni! Jibbí jei róla! Svo kíktum við Iðunn til Barböru vinkonu þar sem henni var tekið sem konungborinni prinsessu, svo það spillti ekki fyrir - ansi góður dagur hjá Iðunni.
Annars er bara tvennt í fréttum: Iðunni var orðið svo kalt að mamman keypti bráðabirgðaúlpu (lesist: rétt vídd, of langar ermar, ekki nógu vantsheld, ekki nógu rúm bla bla bla) fyrir peningana frá Roddy á nr. 5; og Iðunn sofnaði loks í sínu eigin rúmi í kvöld, í fyrsta sinn síðan við byrjuðum á flandrinu öllu í maí. Jeeeeiiiiiiii!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Vonandi stefnir á betri tíma því aðal fyrirvinnan getur ekki unnið 8-9 tíma á dag mikið lengur á 2-3 tíma svefni. Hún hefur samt vaknað á klukkutíma fresti síðan hún fór í háttinn svo ég er ekki viss hvort þetta reynist sannur sigur.

mánudagur, 20. október 2008

Lítill lasarus.


Iðunn nældi sér í einhverja uppgangspest á leikskólanum, og eftir hádegi í gær gerði hún sér lítið fyrir og ældi heljarinnar gusum yfir mömmu sína í sönnum Mr Creosot stíl - ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Jibbíjei, gaman að vera mamma! Alltaf gott að vera með ælu alveg inn að nærbuxum. Hún hélt niðri næturgjöfunum, en í morgun þegar þau Helgi fóru á fætur gusaði hún fyrir hann líka, en einhvern vegin tókst honum samt að koma sér undan árásinni og slapp við að blotna sjálfur. Síðan hefur sem betur fer ekkert annað komið upp úr henni svo við erum að vona að þetta sér nú búið, en hún verður að vera heima á morgun til að jafna sig áður en við sendum hana aftur á leikskólann (lesist leikskólinn vill ekki svona múkka til sín). Iðunn hefur samt verið söm við sig meðan á þessu stóð, hress og glöð og hvers manns hugljúfi, og algjörlega hitalaus, svo ástandið er mun verra fyrir foreldrana sem standa í þrifum og þvottum en stúlkuna sjálfa. Hún borðar og drekkur, og nær vonandi fullum bata á morgun.

Æsa litla


Hún Æsa litla systir mín á afmæli í dag!!!!!! Til hamingju til hamingju! Ég stal þessari sætu mynd af þeim hjónum í algjöru leyfisleysi, og skellti henni hingað inn, ég vona að það sé í lagi. Við vorum svo óheppin að komast ekki heim í bjartsýnisboðið sem haldið var um helgina í tilefni dagsins, svo Æsa besta systir, frænka og mágkona verður bara að eiga knús inni hjá okkur þar til við sjáumst næst, vonandi sem allra allra fyrst!

sunnudagur, 19. október 2008

Draugamyndavélin

Nýi vinnuveitandinn hans Helga vill endilega sjá hann á Skæpfundum, og því höfum við neyðst til að fjárfesta í vefmyndavél. Allt í einu gerir maður sér grein fyrir hvað maður er stúrinn á svipinn fyrir framan skjáinn. Og fyrir utan hve gaman er fyrir ömmur að sjá barnabarnið hoppa og skoppa um veraldarvefinn má líka nýta hana til að festa á "filmu" myndir af hversdagslífinu í Victoria Road. Deus in mascina virðist sýna okkur í raunsærra ljósi en myndirnar á Iðunnarsíðunni





Letilíf


Ekkert er betra en letilíf eftir langa vinnuviku. Í gær fórum við ekki úr náttfötunum fyrr en á hádegi, gerðum ekkert merkilegra en að kíkja á kaffihús í Barnard Castle, og bökuðum svo eplaköku og borðuðum fajitas í kvöldmatinn. Við Iðunn spjölluðum við ömmu Gee á skæpinu og sýndum henni hvað við erum sætar í gegnum nýju vefmyndavélina. Amma segir reyndar að þetta sé svoldið eins og að tala við drauga, því við eigum það til að gufa upp af skjánum af og til. Nú er komið fram að hádegi á sunnudegi, allir í náttfötum nema Iðunn, sem er einungis klædd af illri nauðsyn, því úrgangsframleiðsla var í meira lagi og bíaði út náttfötin (too much information, I know!), eplakökuafgangar í morgunmat (eplagrautur hjá Iðunni) og kaffi drukkið í rúminu. Ekki slæmt, eða eins og við Diljá og mamma eigum til að segja: Gaman núna!

PS Af Iðunni er það helst að frétta að hún er nú farin að standa einhent upp við hina ýmsustu hluti...augljóst að þetta barn mun ekki slá metið mitt sem síðasta barn til gangs í familíunni - mynd af því á myndasíðu...

föstudagur, 17. október 2008

Langþráð endurkoma tannálfsins


Rúmum einum og hálfum mánuði eftir að fyrsta tönnin kom í munninn á Iðunni er loks hægt að finna móta fyrir þeirri næstu. Eins og sést af myndinni hér að ofan er alveg nauðsynlegt að naga allt sem á vegi manns verður meðan svona stendur á.
Húrra fyrir tannálfinum!

Mæðgnadagur



Í dag erum við Iðunn aldeilis búnar að hafa það náðugt. Helgi fór til Hull snemma í morgun og við mæðgurnar búnar að dóla okkur heima fyrir í rólegheitunum í allan dag. Við kúrðum saman til hálf átta, spjölluðum, lékum okkur, drukkum kaffi og skoðuðum bækur þar til Iðunn sofnaði aftur um tíu í heila 2 tíma. Eftir hádegi kíktum við aðeins til Donnu, skoðuðum endurnar, og fórum svo á uppáhaldsstaðinn hennar Iðunnar: róló! Þar var rólað af miklum krafti í fallegu haustveðri og mikið skríkt og hlegið. Á leiðinni heim fór Iðunn svo í skoðun. Hún er orðin akkúrat 9 kg 10 mánaða+6 daga gömul. Hjúkkan gaf Iðunni líka bókasafnspoka með skemmtilegum bókum, stútkönnu, tannbursta og tannkremi - ágætt að græða slíkt á krepputímum. Nokkrar nýjar myndir af deginum góða eru komnar í októberalbúm fyrir þá sem var farið að lengja eftir bloggi og myndum.
Laugardagur á morgun! Jeeeiiii!

þriðjudagur, 14. október 2008

Thursday´s child has far to go....


Iðunnin hefur tekið leikskólann í sátt á ný og naut sín ansi vel í dag. Fóstrurnar eru sérstaklega impóneraðar af því hve vel íslenska barnið borðar. Það er sama hvað fyrir hana er borið, alltaf hesthúsar hún öllum skammtinum af bestu lyst. Við Helgi fórum bæði með hana í morgun, og ég held að honum hafi fundist ég ansi köld að skila barninu og ganga svo frá henni hálfvolandi að reyna að príla upp fótlegginn á mér, en ágiskun mín reyndist rétt og allt var komið í samt lag aftur um leið og foreldrarnir voru komnir úr augsýn.
Við Iðunn erum að skipuleggja mæðgnaferð á gjaldþrotsklakann, til að heimsækja ömmur og versla almennilega úlpu og pollagalla. Lítur allt út fyrir að hún verði farin í lok mánaðar - ég er bara að bíða eftir dagsetningum á alla fundi sem ég er skyldug að sækja áður en ég festi ferðina. Ég ætla líka að reyna að ganga í að leigja út íbúðina okkar til að hala inn nokkrum verðlitlum krónum á þessum síðustu og verstu tímum. Lýsum hér með eftir ábyrgum leigjanda að penni íbúð í Þingholtunum, ef einhver veit um slíkann. Nóg í bili..góða nótt!

mánudagur, 13. október 2008

Þroskapóstur


Litla stelpan okkar varð 10 mánaða um helgina, og í tilefni þess áfanga og kommenta undanfarna daga er víst við hæfi að telja til helstu afrek Iðunnar.
Þegar Iðunn er 10 mánaða er hún: enn bara með eina tönn; farin að fá (aðeins) meira hár; farin að standa upp við allt og fikra sig standandi meðfram hlutum; farin að geta sagt mamma, nammi nammi nammi namm, og einstaka sinnum datt. Hún borðar allan mat sem gaukað er að henni, sama þó hann innihaldi lauk, kryddjurtir, chili osfrv, og mikið af honum. Hún lætur aldrei skipta á sér án þess að snúa sér amk 5 sinnum á magann meðan á því stendur; farin að koma auga á hunda ketti og önnur dýr úr mikilli fjarlægð og skríkja og baða út öllum öngum þegar hún sér þau; og komst í fyrsta sinn í dag upp þrepið í eldhúsinu. Hún hefur komið til Íslands, Svíþjóðar, Danmerkur, Englands, Skotlands, Austurríkis, Þýskalands og Spánar og prýtt forsíðu merks tímarits. Hún er enn í stærð 73. Síðast en ekki síst er hún lang sætust, klárust, skemmtilegust og fallegust í flokki 10 mánaða barna og þó víðar væri leitað.

sunnudagur, 12. október 2008

Helgarblogg


Við áttum heldur tíðindalitla helgi, öll uppgefin eftir fyrstu alvöru vinnuvikuna. Iðunn er búin að vera svolítil mömmustelpa alla helgina, og hún og pabbi hennar með nefrennsli og kvef (upprunalega fengið frá Helga, ekki leikskólanum). Við kíktum reyndar aðeins til Donnu sem var að koma frá Flórída, og í dag eyddum við eftirmiðdeginum með Daníel, Angelu og Chloe, sem er svo afskaplega hrifin af Iðunni. Chloe var með vinkonu sína í heimsókn og þær stöllur höfðu ofan af fyrir Iðunni klukkutímum saman og þreyttust aldrei. Gott fyrir litlar stelpur að eiga svo góðar vinkonur. Fyrir aftan húsið hans Daníels er tún með hrossum á beit, og Iðunni fannst ofsalega mikið sport að skoða þau - eitt reyndi meira að segja að narta í tásurnar hennar, en mamman passaði hana vel, og Ærlækjarselstærnar eru enn í fullri lengd!