sunnudagur, 12. október 2008

Helgarblogg


Við áttum heldur tíðindalitla helgi, öll uppgefin eftir fyrstu alvöru vinnuvikuna. Iðunn er búin að vera svolítil mömmustelpa alla helgina, og hún og pabbi hennar með nefrennsli og kvef (upprunalega fengið frá Helga, ekki leikskólanum). Við kíktum reyndar aðeins til Donnu sem var að koma frá Flórída, og í dag eyddum við eftirmiðdeginum með Daníel, Angelu og Chloe, sem er svo afskaplega hrifin af Iðunni. Chloe var með vinkonu sína í heimsókn og þær stöllur höfðu ofan af fyrir Iðunni klukkutímum saman og þreyttust aldrei. Gott fyrir litlar stelpur að eiga svo góðar vinkonur. Fyrir aftan húsið hans Daníels er tún með hrossum á beit, og Iðunni fannst ofsalega mikið sport að skoða þau - eitt reyndi meira að segja að narta í tásurnar hennar, en mamman passaði hana vel, og Ærlækjarselstærnar eru enn í fullri lengd!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þið voruð fjarri góðu gamni í kvöld. Hér var öll fjölskyldan saman komin í miklu chicken curry áti að ykkur frátöldum og Diljá heimsálfi. Allir stóðu á blístri, sumir meira en aðrir, en samt var afgangur. Ég held ég hafi óvart eldað fyrir ykkur og Diljá líka. Krepputal var í lágmarki og allir í góðu skapi. Dagur er orðinn dálítið einmana í yngri deildinni og vantar Iðunni sárlega í liðið eftir að Bragi fékk náðarsamlegast að vera með í leiknum með stóru stelpunum inni í herbergi.Gaman að sjá hvað Daníel er orðinn mikill fjölskyldufaðir.

Nafnlaus sagði...

Gaman gaman fullt af nýjum Iðunnarmyndum á Picasavefnum.

Nafnlaus sagði...

Ég gleymdi að nefna það að þetta er mikil myndarstúlka, hún Chloe, sem heldur hér á Iðunni. Sendum henni bestu kveðjur frá Íslandi.