
Litla stelpan okkar varð 10 mánaða um helgina, og í tilefni þess áfanga og kommenta undanfarna daga er víst við hæfi að telja til helstu afrek Iðunnar.
Þegar Iðunn er 10 mánaða er hún: enn bara með eina tönn; farin að fá (aðeins) meira hár; farin að standa upp við allt og fikra sig standandi meðfram hlutum; farin að geta sagt mamma, nammi nammi nammi namm, og einstaka sinnum datt. Hún borðar allan mat sem gaukað er að henni, sama þó hann innihaldi lauk, kryddjurtir, chili osfrv, og mikið af honum. Hún lætur aldrei skipta á sér án þess að snúa sér amk 5 sinnum á magann meðan á því stendur; farin að koma auga á hunda ketti og önnur dýr úr mikilli fjarlægð og skríkja og baða út öllum öngum þegar hún sér þau; og komst í fyrsta sinn í dag upp þrepið í eldhúsinu. Hún hefur komið til Íslands, Svíþjóðar, Danmerkur, Englands, Skotlands, Austurríkis, Þýskalands og Spánar og prýtt forsíðu merks tímarits. Hún er enn í stærð 73. Síðast en ekki síst er hún lang sætust, klárust, skemmtilegust og fallegust í flokki 10 mánaða barna og þó víðar væri leitað.
2 ummæli:
Fyrst til að kommentera. Þessi stúlka hefur margt og mikið sér til frægðar unnið þrátt fyrir ungan aldur. Og í þessari hæversku og óhlutdrægu lýsingu mömmunnar er síst ofsagt. Amman tekur undir það að hún er afbragð annarra barna.
Þetta var skemmtilegt yfirlit yfir helstu afrek lítillar stúlku á stuttri ævi. Það sem mestu skiptir er þó að hún er frísk og spræk, glöð og í góðu jafnvægi, á góða foreldra, ömmur og afa, frænkur og frændur, sem elska hana. Já, ömmur mega vera væmnar!
Skrifa ummæli