
Iðunnin hefur tekið leikskólann í sátt á ný og naut sín ansi vel í dag. Fóstrurnar eru sérstaklega impóneraðar af því hve vel íslenska barnið borðar. Það er sama hvað fyrir hana er borið, alltaf hesthúsar hún öllum skammtinum af bestu lyst. Við Helgi fórum bæði með hana í morgun, og ég held að honum hafi fundist ég ansi köld að skila barninu og ganga svo frá henni hálfvolandi að reyna að príla upp fótlegginn á mér, en ágiskun mín reyndist rétt og allt var komið í samt lag aftur um leið og foreldrarnir voru komnir úr augsýn.
Við Iðunn erum að skipuleggja mæðgnaferð á gjaldþrotsklakann, til að heimsækja ömmur og versla almennilega úlpu og pollagalla. Lítur allt út fyrir að hún verði farin í lok mánaðar - ég er bara að bíða eftir dagsetningum á alla fundi sem ég er skyldug að sækja áður en ég festi ferðina. Ég ætla líka að reyna að ganga í að leigja út íbúðina okkar til að hala inn nokkrum verðlitlum krónum á þessum síðustu og verstu tímum. Lýsum hér með eftir ábyrgum leigjanda að penni íbúð í Þingholtunum, ef einhver veit um slíkann. Nóg í bili..góða nótt!
7 ummæli:
ég á rauðan 66°N pollagalla ef þú vilt, buxur og jakka. Hann er stráheill en Fjóla Ósk notaði hann frá þvi hún var 1 árs og má þess geta að hún var meiriháttar písl.
Jibbíiii!Nú er kátt hjá ömmum öllum,hæ fadderí fadderallala,Iðunn er að koma heim!Drífa sig að festa dagsetninguna svo hægt sé að fara að telja niður.Knús og meira knús.
Anna Lilja - já takk! Gallinn þeginn með þökkum.
glæsilegt :)
Gamla kisuúlpan hennar Eyglóar stendur líka til boða. Ég man nú ekki alveg hvaða stærð hún er, skal tékka þegar ég kem heim.
Frábært - maður stórgræðir á að vera með svona bloggsíðu.
Það verður rosalega gaman að fá ykkur í heimsókn. Það birtir örugglega til á skerinu og kreppan hverfur.
Skrifa ummæli