föstudagur, 17. október 2008

Mæðgnadagur



Í dag erum við Iðunn aldeilis búnar að hafa það náðugt. Helgi fór til Hull snemma í morgun og við mæðgurnar búnar að dóla okkur heima fyrir í rólegheitunum í allan dag. Við kúrðum saman til hálf átta, spjölluðum, lékum okkur, drukkum kaffi og skoðuðum bækur þar til Iðunn sofnaði aftur um tíu í heila 2 tíma. Eftir hádegi kíktum við aðeins til Donnu, skoðuðum endurnar, og fórum svo á uppáhaldsstaðinn hennar Iðunnar: róló! Þar var rólað af miklum krafti í fallegu haustveðri og mikið skríkt og hlegið. Á leiðinni heim fór Iðunn svo í skoðun. Hún er orðin akkúrat 9 kg 10 mánaða+6 daga gömul. Hjúkkan gaf Iðunni líka bókasafnspoka með skemmtilegum bókum, stútkönnu, tannbursta og tannkremi - ágætt að græða slíkt á krepputímum. Nokkrar nýjar myndir af deginum góða eru komnar í októberalbúm fyrir þá sem var farið að lengja eftir bloggi og myndum.
Laugardagur á morgun! Jeeeiiii!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegt nýtt blogg og yndislegar myndir. Hvað er hægt að biðja um meira á dimmu föstudagskvöldi. Léttir skapið um margar gráður.

Nafnlaus sagði...

Ég er strax farin að hlakka til að sýna Iðunni Hulduróló-inn í Hafnarfirði. Sérstaklega ef hún verður búin að fá fína pollagallann hennar Fjólu Óskar og kannski lopapeysu líka.