laugardagur, 28. febrúar 2009

Afmæli, afmæli!!


Diljá okkar á afmæli í dag, orðin tuttuguogeinsárs! Í tilefni þessa, og afmæli ömmu Gee fyrr í vikunni er haldið fjölskyldumatarboð í turnhúsinu í kvöld. Okkur finnst voða leiðinlegt að missa af þessu skemmtilega boði, enda ekkert betra en góður matur og skemmtilegt kompaní, sem eflaust verður hvort tveggja að finna á Tryggvagötunni.
Knús a þig elsku Diljá og til hamingju með daginn þinn!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, hér var mikið fjör og mikið gaman, mikið borðað, mikið skrafað og mikið hlegið. Ykkar var sárt saknað, sérstaklega vantaði Unu til að klára sítrónu&rósmarín ofnsteiktu kartöflurnar.
M(amma)n í turninum

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælin mæðgur, Diljá og Gobba.
fk