Við tókum lífinu með ró í dag. Hér er enn snjór og ísakuldi..rok og raki gerir það ekki betra. Við Iðunn skruppum nú samt aðeins á róló og róluðum lengi, lengi, en gáfumst loks upp og fórum heim þegar gerði ískaldan blindbyl á rólónum. Eyddum svo eftirmiðdeginum í að leika okkur og horfa á rugby með öðru auganu. Við Helgi erum búin að vera að skipuleggja hvernig við ætlum að hafa húsgögnin í nýju herbergjaskipaninni..erum ekki alveg viss enn, en þetta er alveg að koma. Við erum búin að velja liti á nýju herbergin svo nú er bara að drífa sig í framkvæmdagírinn..verst er að framkvæmdagírkassinn virðist eitthvað tregur!
Annars er svo gaman núna að skoða gamlar myndir. Ég merki alltaf myndaalbúmin eftir deginum sem myndirnar voru teknar svo það er auðvelt að fylgjast með þroska dömunnar. Myndin að ofan var tekin í dag....sú neðanmáls var tekin þennan sama dag fyrir ári síðan. Gaman að þessu.
3 ummæli:
Ekki hefur hún breyst mikið elskan sú arna. Sami glaðlegi prakkarasvipurinn!Sakna stelpunnar minnar.
Amma G
Já, gaman að þessu :)
kv,
Hildur
Gaman að sjá hvernig daman vex og dafnar. Iðunnar svipurinn leynir sér ekki. Alltaf kát og glöð.
FK amman
Skrifa ummæli