sunnudagur, 1. febrúar 2009

Vetrarhörkur


Nú er hafinn undirbúningur fyrir vetrarhörkurnar miklu sem spáð er að gangi yfir okkur næstu vikuna - er víst von á lofti sem hefur setið helst til lengi yfir meginlandi Rússlands. Þegar er orðið ansi svalt, og eins og þeir vita sem hingað hafa komið er hvergi eins kalt og á Englandi á veturna. Rakinn smýgur inn að beini og kælir mann mun meira en hitastigið segir til um, og húsin eru óeinangruð, varla vindheld, og upphitunarkostnaður stjarnfræðilega hár. Hér í Victoria Road búum við reyndar svo vel að eiga lopapeysur og sokka frá ömmu FK..... hér má sjá feðginin taka því rólega á sunnudagsmorgni - hitastig mældist ca. 14 stig inni þrátt fyrir að kyndingin væri á fullu, þegar við fórum á fætur voru það reyndar bara ca. 10 stig - veit ekki alveg hverju við eigum að klæðast þegar kólnar enn meira - úlpum inni kannski? Það er augljóst að lopapeysusending Íslendinga til gamalmennanna í Hull kom ekki degi of snemma. Verst að ég skyldi ekki hafa sent Helga að næla sér í peysur og teppi úr gámnum þegar hann var í Hull í vikunni....

3 ummæli:

Sonja sagði...

Það er ekki ólíkt ástand á okkur í Ohio. Við höfum það þó betra að því leiti að það virðist ekki vera svo rakt á veturna (en er það á sumrin). Ég bara skil ekki hvernig fólki dettur í hug að byggja hús án einangrunnar!

Nafnlaus sagði...

Eg skil bara ekkert í ykkur að vera að kúldrast þarna í kulda og trekki, í stað þessa að vera hér heima í hýjindum og smákreppu.
Nú er þetta reyndar allt að lagast því tími Jóhönnu er kominn.
FK amman

Nafnlaus sagði...

Ég tek undir með hinni ömmunni. Drífa sig heim bara í ríki heilagrar Jóhönnu. Hér er þó altént hlýtt og notalegt innan dyra.
Amma G