Það er ekki oft sem sögur af bílaviðgerðum enda vel...en í dag gerðist einmitt sá óvenjulegi atburður. Bíllinn okkar var eitthvað óhress, og reyndar búinn að vera þannig síðan um jól. Átti til að missa allan kraft og jafnvel drepa á sér á fullri ferð, sem gerir ökuferðir ekkert sérstaklega afslappandi fyrir bílstjórann. Í dag gat ég loksins tekið mér frí úr vinnunni svo við brunuðum til Masham á verkstæðið "okkar" sem alltaf reynist okkur svo vel. Við bjuggumst við að vera lengi að bíða og fórum því vel klædd, og með kaffi á brúsa . Fengum okkur kaffi og morgunmat (morgungraut) á bekk á torginu í þessum litla bæ....(Helgi hafði á orði að einhverjir myndu kannski halda okkur þýska túrista....) Eftir klukkutíma snérum við aftur til að fá fregnir af hvað þyrfti nú að gera og hversu langan tíma það tæki, og þá var viðgerðin bara búin. Kom í ljós að eitthvað kolvetnisgrugg eða klístur var fast í eldsneytisgjafanum...það var hreinsað og allt komið í lag. Og enn betra: við þurftum ekkert að borga, því við erum svo góðir kúnnar! Jibbíjei!
Þar sem við höfðum gert ráð fyrir að viðgerðin yrði bæði tímafrekari og kostnaðarsamari slógum við bara deginum upp í kæruleysi, og héldum til Harrogate að skoða allar fínu búðirnar þar. Helgi fékk nýja boli í Gap, Una nýja boli og nýtt pils...og litla daman fékk yndislega sæt gammeldags flónelnáttföt (sjá neðan) á útsölu í snobbbúð Cath Kidston. Frábær dagur í alla staði, og ágætis framlenging á helginni.
6 ummæli:
Þetta voru góðar fréttir og hárrétt að eyða óvæntum gróðanum strax í eitthvað skemmtilegt!
Amman í turnium
Mér varð einmitt hugsað til heimsóknar turnömmu í skoðunarferð okkar um Harrogate.... Tilvalið að fara þangað í mars!
Flott náttföt !
Ég pant líka fara til Harrogate ...
fk
Allar ömmur mega fara til Harrogate!
fer ekki að líða að því að Amman í turninum fái að versla í breskum búðum eða?
kv,
Hildur
Eins og sjá má af niðurtalningunni hér til hliðar er 21 dagur þar til amma Gee kemur til UK.
Skrifa ummæli