miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Bzzzzzzzzzzzzzzzzz.....................


Í dag kom aldeilis skemmtileg sending með póstinum. Iðunn hafði fengið peninga til að kaupa sér bæði afmælis- og jólagjöf frá afa Viðari og ömmu Titti. Foreldrarnir voru eitthvað lengi að koma því í verk að nota peningana, en í dag kom loksins gjöfin: fínasta rúllubífluga!!! Þessi bífluga rúllar í allar áttir og festist því ekki í hornum....svo spillir ekki fyrir að hún er ansi smart! Iðunn er stórhrifin og þau pabbi hennar eiga eflaust eftir að skemmta sér vel heima á morgun í bífluguleik.
Í öðrum fréttum er það helst að Iðunn er að fá tvær framtennur til viðbótar sem eru aðeins að ergja hana, svo næturnar hafa verið svoldið erfiðar...ekki bætir úr að mamman er með þrálátan hósta sem heldur fyrir henni vöku þá sjaldan barnið sefur. Svo er komin upp hlaupabóla á Stígvélabæ (leikskóla Iðunnar) svo við megum víst eiga von á bólunni í heimsókn líka.
Kveðjur úr snjónum í Barnard Castle.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mig langar í svona!!!

kv,
Hildur

Nafnlaus sagði...

Þið eruð bara að verða í stíl á allan máta við okkur, veikindalega og rúllubíflugulega... æðislegt leikfang sem verður æðislegra eftir því sem barnið eldist... þá þurfa reyndar aðrir viðstaddir að fara að vara sig híhí
kveðja
Anna Lilja og Birgir Óli býflugustrákur

Nafnlaus sagði...

Þvílík græja! Ég segi eins og Hildur, er hægt að fá svona fyrir fullorðna? Er með ökuréttindi!
Amma G

Nafnlaus sagði...

Nú er gaman hjá Iðunni. Hún getur þotið út um allt hús á flugunni sinni. Það er ekki slæmt að eiga svona fínan bíl.
FK