Hér er komið ekta vetrarveður. Snjóaði í alla nótt og spáð mun meiri snjó á morgun. Mamman ákvað að vera bara heima í dag, og hugsa að ekki verði farið í vinnuna fyrr en um miðjan daginn á morgun. Í staðin áttum við rólegan dag, lögðum okkur öll saman í tvo tíma fyrir hádegi, og fórum svo í göngutúr í snjónum eftir hádegi. Við fórum í garðinn hennar Donnu og byggðum þar snjókarl..reyndar svoldið prímitívann. Hituðum svo súkkulaði þegar heim var komið og nutum þess að vera saman. Yndislegt að fá svona bónusdag!
2 ummæli:
oh...ég vil leggja mig í 2 tíma fyrir hádegi! Sat einmitt í morgun upp í HÍ og hugsaði um rúmið mitt.
kv,
Hildur "þreytta frænkan"
Þessar myndir af Iðunni minna á mynd af Unu, sem tekin var fyrir utan húsið í Hrafnagilsstræti um svipað leyti árs 1973. Hún hafði líka gaman af að leika sér í snjónum. Þetta hefðu reyndar ekki þótt mikil snjóþyngsli þar fyrir norðan.
Amma í turninum
Skrifa ummæli