Þó febrúar sé bara rétt að fara að kveðja er vor í lofti hér í Barnard Castle. Krókusar og snjódropar spretta uppúr moldinni og komnir knúppar og pínulítil laufblöð á marga runna og tré....yndislegt! Enn betra er að nú er orðið albjart kl 07.15 þegar við Iðunn brunum af stað í vinnu og leikskóla á morgnanna. Nú bíðum við bara eftir að sjá fyrstu lömbin....
Gaman núna!
1 ummæli:
Je minn eini, hvað ég hlakka til að fá forskot á vorið. Bara 11 dagar til stefnu.
Vorglaða amman
Skrifa ummæli