14.febrúar...valentínusarmessa.
Eins og allir vita er stefnan að ala upp snilling hér á Victoria Road. Hingað til gengur allt samkvæmt áætlun og manngangurinn og tegrun alveg á næsta leyti. Daman hefur síðan í október verið fullfær um að segja takk þegar henni eru réttir hlutir (Taaaa, Taaaaaa), en allt í einu fór hún að tönglast á einhverju Da Gooooo.... Foreldrarnir skildu ekki neitt í þessari afturför fyrr en mætt var í leikskólann og fóstran tilkynnti þeim að eftir að hafa tjáð sig með einhverju óskiljanlegu Taaa í marga mánuði væri barnið loks farið að segja Thank you. Sem sagt alls engin afturför, heldur færði hún sig einfaldlega á lægra plan og tók upp enskuslettu fyrir dömurnar á leikskólanum...
Snillingsþjálfunin enn á áætlun!
3 ummæli:
Það getur verið erfitt að vera snillingur þar sem fólkið í kring um mann skilur ekki snilldina. Hún þarf að yfirfæra þetta á mörg tungumál, en henni verður ekki skotaskuld úr því.
fk amman
Da goooo er bara fyndið en í guðs bænum reynið að halda íslensku að barninu. Ég treysti því að hún verði farin að segja amma ekki seinna en 11. mars. Dagur er búinn að ná þessu. Ég frábið mér að vera kölluð granny!
Amman í turninum
Á okkar heimili er að sjálfsögðu bara talað saman á kjarngóðri íslensku. Aftur á móti gengur okkur illa að þjálfa leikskólakennarana í íslenskri tungu....en við gefumst ekki upp! Annars eru ömmur hér í norður Englandi yfirleitt kallaðar Nana....sem hljómar ansi líkt og amma....
Skrifa ummæli