föstudagur, 13. febrúar 2009

Áframhaldandi sjálfstæðisbarátta


Stelpan okkar tekur daglegum framförum, og allt vill hún gera sjálf. Hún getur klætt sig í húfuna, hún getur klifrað upp næstum allan stigann í einni ferð (með pabba á eftir sér...), hún getur borðað sjálf, drukkið sjálf, og í gær sýndi hún okkur að hún getur staðið sjálf ein og óstudd í dágóða stund. Hins vegar er hún líka "sjálf" fyllilega fær um að klemma fingur í skúffum, stíma á öll horn og kanta, reka höfuðið í gluggakistuna, og detta niður úr sófanum og festast þar. Erfitt að vera sjálfstæður grallaraspói!

Að neðan má sjá að grallarasvipurinn er ekki nýtilkominn - Iðunn fyrir ári síðan

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jæja er þá kúlutíminn hafinn?
kúlur, glóðaraugu og marblettir, "sérlega gaman að fara með ungann á leikskólann eða hitt þó heldur" kv. Eygló

Nafnlaus sagði...

Þvílík grallarastelpa, bara yndisleg. Man þegar ofursamviskusöm hjúkka í barnaskoðuninnni í Gautaborg sendi mig inn til læknisins vegna grunsamlegra marbletta á sköflungunum á mömmu hennar Iðunnar.
Amma G