Ég átti alveg hreint yndislegan afmælisdag...þrátt fyrir að hafa þurft að mæta í vinnuna sem ætti náttúrulega að vera bannað þegar maður á afmæli. Fyrst fékk ég kaffi áður en ég fór í vinnuna, og ávísun á nudd og andlitsdekur í afmælisgjöf frá Helga og Iðunni. Þau eru yndisleg. Svo þegar ég kom heim úr vinnu tók enn betra við því Helgi hafði bakað handa mér dýrindis franska súkkulaðiköku og skreytt með hindberjum og bjartsýnisskilaboðum (alltaf að yngjast!).
Iðunn fékk að smakka á kökunni og við mæðgur vorum sammála um að hún væri hið mesta hnossgæti og við einstaklega heppnar að eiga svona flinkann eiginmann og pabba. Nammi namm!
Rétt fyrir átta um kvöldið kom svo Donna og sat hjá Iðunni á meðan við skruppum út að fá okkur indverskan mat - risarækjur í balti sósu mmmmmmmmmmmmmm.........
Yndislegur dagur í alla staði!
Hér er svo ein crazy fjölskyldumynd í tilefni dagsins!
PS Iðunnarfréttir: Iðunn er komin með bílaæði og vill helst leika sér með bíla allan daginn. Við eigum enga bíla og þurftum að fá einn að (bráðabirgða)láni hjá leikskólanum....
2 ummæli:
Þvílíkur eiginmaður! Bakar franska súkkulaðiköku og yngir konuna sína um 10 ár. Litla súkkulaðifés er yndisleg að vanda. Hlakka til að sjá ykkur eftir 19 daga.
Amman í turninum
Þetta er maður sem kann sig. Svona á að fara að þessu strákar og konudagurinn er á morgun.
FK mamman
Skrifa ummæli