föstudagur, 22. maí 2009

The Great Escape!




Uppáhaldsorð og iðja Iðunnar þessa dagana er LABBA! Það er varla hægt að fara útí búð án þess að daman heimti að fá að komast úr kerrunni og ganga sjálf. Yfirleitt sækist þá heimferðin frekar seint, enda leggirnir stuttir og gangan löng. Eina skiptið sem Iðunn fer hart er þegar hún er með Brio vagninn á undan sér. Í gær vorum við pabbi hennar að stússast með rusl í garðinum og daman nýtti tækifærið og labbaði með vagninn sinn út í bakgarðinn, þaðan lá leiðin upp bakgötuna, inn næstu bakgötu og þaðan út á Victoria Road með mömmu í humátt á eftir. Litla pæjan fékkst ekki til að snúa við fyrr en hún var komin hálfa leið niðrí bæ, eftir að hafa hitt hundinn Henry, fullt af nágrönnum, heilsað öllum sem leið áttu um götuna með hressu Halllóóóó og drottningarveifi, og skemmt sér stórkostlega vel. Það er stuð að vera 17 1/2 mánaða!

3 ummæli:

amma fk sagði...

Þetta hefur verið sannkallað Ævintýri á gönguför hjá litlu dömunni. Eftir að hafa verið hjá ykkur sé ég atburðarásina ljóslifandi fyrir mér. Frábært að fá að fylgjast með.

Nafnlaus sagði...

hahaha...geggjað! Hún virðist taka eftir litlum dreng sem býr í Hamrahlíðinni :)

kv,
Hildur

Eszter Tóth sagði...

Go go Iðunn!