föstudagur, 15. maí 2009

Tæknivæðingin mikla


Verkfræðingurinn er lúmskur. Hann kemur sér fyrir, bíður átekta, og um leið og færi gefst ræðst hann á garðinn þar sem hann er lægstur og innrás tæknivæðingarinnar er hafin! Um daginn bilaði ískápurinn í Victoria Road. Verkfræðingurinn gekk í málið og hálfum mánuði síðar, eftir bestun og gæðakönnun er kominn nýr ísskápur í húsið.....hann kom á mánudag. Nokkrum dögum eftir að ísskápurinn var keyptur var komin ný kaffivél. Í dag föstudag kom svo önnur sending: brauðrist og brauðgerðarvel.....og á morgun skilst mér að von sé á manni með flatskjá! Ég þori varla að spá í hvað muni birtast í næstu viku!
Annars er það helst að frétta að hér er hundleiðinlegt veður...endalaus rigning....en það kemur á móti að á meðan rignir hér er sól á Íslandi svo einhver nýtur þó góðs af!
Allir hraustir, allir glaðir, og Helgi strax farinn að hlakka til að fikta í flatskjánum....

7 ummæli:

Helgi sagði...

Búinn að panta svona líka:
http://images.smarter.com/blogs/guests/greener%20gadgets.jpg

Nafnlaus sagði...

Kanski SAMLOKUGRILL??
kv. Eygló

Nafnlaus sagði...

hahaha! Maður verður nú að gera sér ferð til Englands til að prófa þetta rosa klósett. Hvernig er það ef maður situr þegar vélin er að tæma sig. Er þá bara ítalska leiðin á þetta eða?

kv,
Hildur

amma fk sagði...

Seigur Helgi minn!
Nýi ísskápurinn er sá flottasti sem ég hef séð. Hvenær fáum við mynd af honum?
Heppin að ég var farin heim þegar nýja klósettið kom.
au pair amman

Nafnlaus sagði...

Músin sem læðist og allt það!Mér líst vel á þetta með flatskjáinn. Vona að hann sé stærri en þessar tíu tommur, sem veslings sjóndapra amman hefur verið að reyna að rýna á í fyrri heimsóknum í Victoría rd.Ég hef efasemdir um brauðvélina, en fagna kaffivélinni.
Amman á leiðinni

Einar Jón sagði...

Er Helgi farinn að sýna eldhúsinu áhuga?
Hvað ertu búin að gera við manninn?

Eszter Tóth sagði...

Jæja, líka mér sýnist að þið hafið rafmagn allan sólarhringinn. Minna gaman að hafa græjur þegar maður er rafmagnslaus 8 kl.stundir á dag.

Gaman að lesa fréttirnar ykkar!