fimmtudagur, 3. júlí 2008

Tíðindalítill fimmtudagspóstur fyrir Iðunnarlausar ömmur


Niðurtalning er hafin fyrir Vínarferðina - einungis 1 dagur eftir í vinnunni, svo skyndipakkning að hætti Unu, í rúmið klukkan níu á föstudagskvöld og á fætur klukkan 03.......og svo til Vínar þar sem spáð er 27 stiga hita og sól. Við Helgi ætlum að skiptast á að sækja ráðstefnuna og hitt röltir þá um bæinn og sest á kaffihús eða skoðar söfn. Vonandi gefst líka tími til samveru inn á milli, sérstaklega þar sem við eigum opinbert brúðkaupsafmæli á sunnudaginn.
Hér var spáð herfilegu veðri í dag en við virðumst hafa sloppið ansi vel - lentum reyndar í einum skúr á leiðinni heim frá Durham, en annars var bara ágætt veður, sást meira að segja í bláan himinn inn á milli. Við sóttum bílinn okkar sem er búinn að vera á verkstæði síðan á mánudag, hann er allur annar, en pyngjan okkar 630 pundum léttari. Úff!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Una mín! Þessi amma kann svo sannarlega að meta að þú gefir þér tíma á hverjum degi til að gleðja okkur með fréttum af ykkur og myndum af glöðu Iðunni Ég veit þú nennir því ekki alltaf en gerir það samt.Takk fyrir það.

Una sagði...

Ekkert að þakka - ég er búin að breyta fyrirsögninni aðeins - hún er betri svona.