miðvikudagur, 2. júlí 2008

Frídagur


Hér hefur verið meira og minna skýjað í dag, en samt smá sól fyrir hádegi og sæmilega hlýtt svo Iðunn hætti sér í sumarkjólinn og dundaði sér við leik og störf í fína Silfurkrossinum úti í garði - þegar sólhlífin er komin á vagninn er hún enn virðulegri í honum - konungborin eins og allir hinir prinsarnir og prinsessurnar á Íslandi. Sjá má myndir af fíneríinu á eplamyndasíðunni hér til hliðar. Svo röltum við mæðgur í bæinn og fengum okkur kaffi fyrir framan Kaffi Zetu með Donnu (þurftum að fá hjá henni veskið sem ég gleymdi í kvöldheimsókn gærdagsins). Það var svo ofsalega gaman að hitta Donnu að Iðunn mátti ekki vera að því að leggja sig og var því orðin alveg útkeyrð þegar við komum heim - sofnaði um 50m frá húsinu, og liggur nú í rúminu sínu með sælubros á vör. Ég held ég fái mér smá kríu líka!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæt og fín í nýja sumarkjólnum.

Nafnlaus sagði...

Þetta var auðvitað amma randalín, sem skildi eftir síðustu athugasemd.