
Í dag hófum við júlímánuð með nýju albúmi á myndasíðunni (hitt var orðið stútfullt - ég held ég taki allt of margar myndir!) og afar velkomnum veðurbreytingum. 24C, sól og blíða. Yndislegt! Ég kom snemma heim úr vinnunni, Iðunn svaf í vagninum sínum undir blúnduskyggninu, og Helgi grunnaði nýja garðhliðið. Um kvöldið fórum við í garðhitting hjá Donnu, fengum brauð, osta og salat úti í garði og nutum veðurblíðunnar. Það var svo yndislegt að fá loks almennilegt sumarveður og finna sólina verma mann alveg inn að beini. Adam var reyndar ekki lengi í paradís því nú klukkan 21.40 er komin úrhellishitabeltisrigning - ég rétt náði að kippa þvottinum af snúrunni! Vonum að sólin skíni aftur á morgun...
4 ummæli:
Já, það var eins og við manninn mælt, um leið og veðrið fór að batna hjá ykkur byrjaði að versna hér og nú er komin húðarigning og rok. Ekki gaman.Sefur barnið með fæturna upp í loft? Mjög fyndið.
Hún sefur reyndar stundum svona...en þegar þessi mynd var tekin var mamman enn að reyna að sannfæra hana um að það væri sniðugt að loka augunum...
Ég held reyndar að við eigum inni smá gott veður. Vonandi kemur það aftur til ykkar þegar við förum til Vínar í vikulokin.
Þið takið aldrei of mikið af myndum, a.m.k. ekki meðan þið eruð í útlandinu og við ömmurnar bíðum í ofvæni eftir nýjum myndum, helst oft á dag.
Ég sé á færslunni að fótboltinn er liðinn fyrir eiginmanninn og vinnumaðurinn Helgi er fluttur inn aftur.
Skrifa ummæli