
Í dag náði Iðunn þeim merka áfanga að geta setið sjálf - og til að gera þetta nú almennilegt sat hún svona heillengi, og teygði sig eftir dóti og rétti sig við aftur og missti aldrei jafnvægið - ofsa stór og dugleg stelpa! Sólin skein líka á okkur í allan dag sem gerði daginn enn betri - yndislegt! Eina sem spillti fyrir voru músahræin tvö sem við fundum í borðstofunni þegar við komum heim, annað í tveimur hlutum.....blearrrghhhh!
Vínarborg á morgun - við hlökkum mikið til!!
5 ummæli:
Duglegasta stelpan í sínum aldursflokki og ótrúlega töff með gleraugun á hausnum. Er að passa Dag, sem er allra duglegasti og skemmtilegasti strákurinn í sínum flokki. Voða góður og þægur við ömmuna sína. Gott að eiga barnabörn í öllum aldursflokkum,alltaf frábærust hvert á sinn máta.
Ekki gleyma að blogga fyrir ömmurnar á ferðalaginu. Góða ferð til Vínar litla Iðunn.
Við gleymum því ekki - þó þú verðir fyrir norðan og austan þar sem dentsamband er lítið - hin amman er víst líka á leiðinni út úr bænum, svo við vonum bara að einhverjir aðrir skoði þetta blogg stundum líka því annars fer aldeilis að hægjast um í kommentunum....
Farin að sofa, verð að fara á fætur eftir 5 tíma.
netsamband átti það víst að vera
Skemmtid ykkur vel i Vin, vid hefdum verid til i ad hitta ykkur en erum komnar alla leid til Serbiu nuna svo thad er frekar langt ad fara. Erum ad fara a tonlistarhatid her a morgunn og fram a sunnudag, verdur orugglega mjog gaman. Ekki borda yfir ykkur af snitzel!
Hae hae,
Vonandi hafid thid thad fint i Vinarborg, her i New York hofum vid verid ad reyna pina litlu paeju til ad vera med solgleraugun en hun vill bara naga thau. Vid synum henni myndina af Idunni til ad hun sjai hvernig a ad gera thetta. Bestu kvedjur til eplanna ur stora eplinu,
Palin, Einar og Steiney Lilja
Skrifa ummæli