Hér hefur lítið verið skrifað að undanförnu enda allir lúnir eftir langan vetur og allt of mikið að gera. Alltaf má nú samt telja til einhverjar Iðunnarfréttir:
Iðunn er farin að geta staðið þó nokkuð lengi óstudd og orðin voðalega áhugasöm um að færa sig af fjórum fótum á tvo. Hins vegar háir göngulagið - gæsagangur að hætti Hr Flick - henni svoldið og hún vill helst ekki sættast á að maður þurfi að vera aðeins hógværari í skrefalengd til að halda jafnvægi á tveimur fótum. En þetta er allt að koma.
Iðunn stakk sér fram af sófanum í gærkvöldi með höfuðið á undan og hitti beint á sófaborðshornið og státar nú stórri kúlu á enninu.....það var mikið grátið en allt nú gleymt á ný.
Iðunn er enn símaóð....allar fjarstýringar, símar, og allt sem mögulega gæti líkst síma er sett upp við eyrað og svo svarað Hallúúúú.....rosa sport!
Stelpan okkar er alltaf að verða ákveðnari (frekari?) og veit sko alveg hvað hún vill , og allt skal hún gera sjálf - borða, klæða sig, mata mömmu með skeið.... Það er gaman að fylgjast með henni breytast úr ungabarni í sjálfstæða litla dömu með skoðanir á öllu, þó maður sé stundum orðinn svoldið þreyttur á sjálfstæðisbaráttunni...
Nóg í bili frá andlausu mömmunni.
2 ummæli:
Já þið getið alveg búist við að hún verði sjálfstæð og ákveðin kona miðað við foreldrana sem hún á. Frábært að fá að fylgjast með þróunarsögunni þótt í fjarlægð sé.
FK amman
Bara gaman. Hlakka óendanlega mikið til að hitta litlu sjálfstæðiskonuna og sjá allar framfarirnar í eigin persónu. Bara ein vika enn.
Amman á leiðinni
Skrifa ummæli