Hún amma Gobba er loksins komin til okkar. Iðunn þekkti hana strax aftur og var ekkert feimin...var samt smá skrýtin á svipin, eins og að hún áttaði sig á því að það væri eitthvað skrýtið að hafa ömmu hér í Englandinu...amma á heima á Íslandi!
Nóttin áður en amma kom var líka merkisnótt - fyrsta nóttin sem Iðunn svaf í nýja herberginu sínu, og fyrsta nóttin sem foreldrarnir sváfu bara tvö saman í heila nótt í 15 mánuði...Iðunn vaknaði bara einu sinni og pabbi "endurduddaði" og stúlkan sofnaði brátt aftur. Síðasta nótt gekk jafn vel, svo hér er lífið allt á uppleið.
Í dag tókum við lífinu með ró og við Iðunn og amma fórum svo í smá verslunarferð til Darlington, mamman fékk nýja skó og vorjakka, Iðunnin kubba, náttföt og hnífapör, og amman uglutösku og parmesan - allir sáttir!
Fiskur og chips í kvöldmatinn og sjónvarpsruslgláp. Gaman núna!
1 ummæli:
Gaman, gaman hjá ykkur. Já keyptuð þið rubic kubb handa stúlkunni? Hún verður snögg að púsla þessu rétt saman.
Amman sem kemur bráðum í heimsókn
Skrifa ummæli