Við Helgi skildum aldrei hvað varð um öll snuðin hennar Iðunnar. Á hverju einasta kvöldi þurfti að leita hátt og lágt að snuði og alltaf verið að kaupa ný snuð þegar engin fundust. Á miðvikudag ákvað Helgi svo að fara út í bakgarðinn að stússast og fann snyrtilega dudduhrúgu fyrir utan bakdyrnar. Litla stýrið hafði þá augljóslega verið að dunda sér við að henda þeim út um kattalúguna í einhvern tíma.
Þá voru snuðin allt í einu orðin 9 á heimilinu.
Í dag fór Iðunn í gönguferð með öll snuðin sín og Surtlu tuskukisu. Öll voru í Brio kerrunni og brunað ákveðið með þau fram í eldhús. Þegar þangað var komið voru þau svo tekin, eitt af öðru og dýft ofan í vatnsdall kattanna....um að gera að vaska þær svona upp af og til....
Sniðug litla stelpan okkar!
3 ummæli:
Ó mæ goooooddd. Er búið að sótthreinsa snuðin? eða kaupa nýjar birgðir?
Sótthrædda amman fk
Þetta er bara fyndið. Af misjöfnu þrífast börnin best, ekki satt.
Amman kærulausa
hahaha! :) Sniðuga stelpa!
kv,
Hildur
Skrifa ummæli