laugardagur, 7. mars 2009

Laugardagur til lukku


Laugardagar eru góðir dagar.....yfirleitt lesum við blöð og drekkum kaffi í rúminu og hvílum okkur öll þegar Iðunn leggur sig aftur (svona milli 9 og 10). Eftir rólegan morgun fórum við á bændamarkaðinn sem haldinn er í BC fyrsta laugardag í hverjum mánuði. Þar komumst við aldeilis í feitt. Keyptum osta, brauð, sultur, lambalæri, nautahakk og dádýrskjöt. Iðunn var himinsæl, fékk að smakka fullt af ostum hjá ostagerðakonunni sem alveg heillaðist af þessari litlu dömu sem elskar ost, því sterkari því betri! Svo fengum við okkur heimatilbúnar kryddpylsur í brauði hjá pylsugerðarmanninum (Húrra fyrir pylsugerðarmanninum!) sem féllu í kramið hjá öllum fjölskyldumeðlimum. Nammi namm.
Mamman eldaði dádýrspottrétt í kvöldmatinn, og Iðunn glæfrakona hjálpaði til við uppvaskið. Góður dagur!

PS Helgi náði líka að mála loftið í gestaherberginu, allt fer að verða tilbúið fyrir ömmuheimsóknina....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sú er búkonuleg að hjálpa til við uppvaskið. Eins gott að nota sér það meðan hún nennir. Bráðum verður hún táningur, sem þarf að múta til að taka til hendi.
Amman lífsreynda. Bara 4 dagar til stefnu!!!!!!!!!

Nafnlaus sagði...

Aldeilis stuð hjá ykkur og svo eruð þið komin með vinnukonu. Hún er mjög einbeitt á svipinn enda verkefnið ærið.
FK amman