Við höfum verið ansi bíssí í Victoria Road í dag. Helgi málaði veggina í gestaherberginu og á meðan fórum við Iðunn á róló og í langan göngutúr. Þegar við lögðum af stað gekk á með skúrum, en við Iðunn héldum samt galvaskar af stað - litla daman vel búin í lopapeysu og 66N pollagalla og til á hvaða róluvöll sem er. Við róluðum og róluðum þrátt fyrir hávaðarok og rigningu. Reyndar höfðum við róluvöllinn alveg út af fyrir okkur því enginn annar lagði í leikvallarferð í vondu veðri. Undir lokin komu nokkur haglkorn en við lögðum samt að stað í gönguferð að kíkja á endurnar á ánni.....við vorum komnar hálfa leið þegar brast á með brjáluðum (láréttum) hagléljum...brrrr... Endaði með að ég varð að snúa kerrunni og teyma hana á eftir mér því veðrið stóð beint inn í hana. Iðunn hágrét enda blaut og undir haglélsárás... Það endaði með að við leituðum skjóls á Costa kaffi og biðum þar þangað til veðrið gekk yfir.
Helgi var duglegur og kláraði alla málninguna svo á meðan Iðunn lagði sig brunaði ég í kaupstað að sækja meiri málningu, og Helgi náði að klára allt sem eftir var, svo nú fer að vera hægt að ganga frá aftur og undirbúa komu ömmu Gee. Ekki samt víst að allt verði komið í lag áður en hún kemur því það er ansi mikið sem þarf að gera.
Nú er allt orðið rólegt hér á bæ....Iðunn og pabbi horfa á barnatíma og mamman var að enda við að skella lambalæri með hvítlauk og rósmarín í ofninn...ilmurinn er farinn að berast hingað að tölvunni...mmmmmm.....
Sunnudagskveðjur frá Barnard Castle.
4 ummæli:
oh....mig langar í lambalæri með hvítlauk og rósmarín!
kv,
Hildur
Þetta hljómar allt vel nema veðrið. Ég var farin að hlakka til að koma í vorið með blómstrandi krókusum og páskaliljum um alla garða. Verður það ekki örugglega komið aftur á miðvikudaginn?
Amman vorelska
Ég sá hérna langt fyrir neðan að Iðunn líkist frænda sínum með skítuga putta. okkur fannst þetta voða sætt og fyndið til að byrja með, en þegar Dagur sótti borðtuskuna til að þurrka brauðið sem kom við súpuna! þá fannst okkur þetta nú orðið heldur mikið pjatt!
ks
Þetta er nú örugglega svalasta stelpan í Bretlandi. Hún lætur illviðrið ekkert á sig fá.
amma cool
Skrifa ummæli