Hér fara fram endalausar gönguæfingar og stendur Iðunn sig bara vel í þeim, enda rosa stuð að fá að labba um húsið á tveimur jafnfljótum með smá hjálp frá mömmu og pabba. Hún er orðin voða flink að standa sjálf, og í dag tók hún loksins 3 skref óstudd! Rosa montin, og foreldrarnir líka!
4 ummæli:
Já, dugleg stelpa enda er hún í svo flottum gönguskóm og bleikum bol. Hún getur bráðum komið með ömmu sinni í fjallgöngu.
Gönguóða amman
haha...það er eins og hún sé að dansa! :)
kv,
Hildur
Hún er auðvitað að æfa sig svo hún geti hlaupið á móti ömmunni sinni. Dugleg stelpa!
Amman óþolinmóða
Jiii þetta er nátturulega mesta krúttið :D
Til hamingju með þennan áfanga !
kv,
Fríða og co
Skrifa ummæli