
Enn er hér mikil veðurblíða og hitin hefur haldist yfir 20 stigum og vel það alveg síðan við komum. Það á víst að kólna aðeins á morgun - niður í svona 17 stig, en annars spáð sól og góðu veðri út næstu viku líka. Það virðist reyndar oft fara saman að veðrið verður yndislegt þegar allir liggja í próflestri, en er svo kannski hundleiðinlegt það sem eftir er af sumrinu.
Í gær nutu Iðunn og pabbi hennar veðursins í Durham meðan mamman fór á kóræfingu í dómkirkjunni. Allar kerlingarnar í kórnum vildu skoða Iðunni og bar auðvitað saman um að hún væri undurfríð og sæt og yndisleg. "Such a happy little thing". Þau feðginin fóru m.a. í Marks og Spencer til að finna lausn á sokkavanda Helga Péturs. Helgi á nefnilega einungis einstæða sokka, því hann er ansi gjarn að henda sokkum sem komið er gat á og gleyma þá að henda líka hinum sokknum sem passar við. Nú keypti hann sér stóran pakka af sokkum, öllum eins svo alltaf verður hægt að finna einhverja sem passa saman. Hann er sérlega ánægður með að sokkapakkinn stærir sig af því að innihaldið sé "The most comfortable socks in the world", og heldur því nú fram að engir sokkar jafnist á við þessa í þægindum.
Um kvöldið fór Una svo aftur til Durham og söng á tónleikunum sem tókust bara furðu vel miðað við fyrri reynslu af kórnum. Helgi og Iðunn höfðu það bara náðugt heima á meðan. Þar með lýkur fréttaflutningnum af þeim degi.....
6 ummæli:
snilldarsokkar,
prjónaðir með sérstakri tækni sem gerir það að verkum að engin táfýla kemur.
Freshtech™ technology keeps them odour-free.
ekki amalegir sokkar það
Það er bara fullt starf að fylgjast með blogginu, sérstaklega með það í huga að það á að commenta á allar færslur.
Helgi, keyptu einn pakka af sokkum handa Jóhannesi.
Þá er búið að redda jólagjöfinni hans Jóa í ár!
Það fer að hægjast á skrifunum þegar ég fer að vinna - er aðallega að skrifa svona oft svo eitthvað nýtt sé komið þegar amma Gobba og Diljá fara á netkaffin þarna í Grikklandinu
Alltaf gaman samt að fá komment....
Una mín
Haltu bara áfram að vera dugleg að blogga. Flest okkar gera ekkert merkilegra í vinnunni en að lesa þetta frábæra blogg.
Og Helgi náðu þér í umboðið fyrir þessa táfýlulausu sokka. Það er framtíð í því.
fk
Já, já!! Guð, já! Fýlulausa sokka handa Jóhannesi!!
Ég hef notað sömu tækni í nokkur ár, með svörtum íþróttasokkum frá Footlocker.
Mun minna vesen en að reyna að para saman misunandi sokka.
Skrifa ummæli