
Í dag mun Diljá allra besta frænka halda í heimsreisu um a.m.k 4 heimsálfur (Evrópu, Ástralíu, Eyjaálfu, og Ameríku) og kemur ekki aftur fyrr en í desember. Æ hvað við eigum nú eftir að sakna hennar. Við erum hrædd um að amma í turninum verði svoldið einmana líka og sendum við henni því risa stórt knús!!
Góða ferð Diljá, og vertu nú dugleg að blogga svo við getum séð hvar þú ert niður komin.
Passaðu þig á ljótu köllunum, og muna að vera alltaf í hreinum nærfatnaði!
Una varamamma
2 ummæli:
Kæra Diljá, góða ferð og skemmtu þér ofsalega vel. Una þú verður eiginlega að setja upp bloggið hennar Diljáar ef hún er með slíkt ;)
Annars var ég að skoða myndasíðuna ykkar. Mér finnst hún alltaf líkjast Eygló meira og meira, þannig að þú átt nú greinilega mikið í henni ;)
Kominn linkur á Diljá! Sjá hér til hægri...>
Ja ekki er nú slæmt að líkjast Eygló frænku, hún sem er svo sæt!
Skrifa ummæli