
Skömmu eftir að ég fluttist til Barnard Castle birtist lítil auglýsing í háskólanum þar sem leitað var að einhverjum sem vildi taka með sér farþega frá Barnard Castle til Durham gegn þátttöku í bensínkostnaði. Ég svaraði auglýsingunni, og þannig kynntist ég fyrst Donnu sem þá vann sem ritari í félagsfræðideild háskólans. Skömmu síðar hætti hún að vinna í Durham og sagan hefði getað endað þar. Hins vegar náðum við svo vel saman að við höfum verið perluvinkonur alla tíð síðan. Donna er einstaklega skemmtileg kona og ein af þeim sem er enn í afslappaða stílnum síðan á hippaárunum, bjó t.d. lengi vel með fyrrverandi manni sínum og 3 dætrum í húsvagni og ferðaðist milli staða meðan hann sinnti starfi sínu sem skógarhöggsmaður. Hún er algjör perla, hefur t.d. alltaf hugsað um kisurnar mínar þegar ég er á ferðalögum og hélt brúðkaupsveisluna okkar í garðinum og húsinu sínu í fyrrasumar. Þegar von var á Iðunni var Donna jafn áköf að fylgjast með og hinar ömmurnar (þó hún væri orðin fjórföld amma sjálf), og prjónaði m.a. 3(!) teppi handa henni. Það er því eilítil huggun harmi gegn þegar við neyddumst til að yfirgefa hinar ömmurnar á Íslandi að Donna "amma" er hér í Barnard Castle til að knúsa og spilla Iðunni. Iðunn fann það strax á sér að þarna væri komin "ekta" amma, og hefur heillað Donnu algjörlega uppúr skónum eins og hennar er von og vísa. Það er gott að eiga svona góða að í útlegðinni. Í sumar ætlarDonna svo að koma með okkur heim til Íslands og fara með okkur hringveginn og skoða landið.
Litlar stelpur sem eiga margar góðar ömmur hljóta ansi gott vegarnesti í lífinu.
3 ummæli:
Af hverju hefur þetta blogg farið fram hjá mér þar til núna?
Ég er strax búin að gera ansi merkilega uppgötvun!
Una, þú ert í kór? Why was I not informed?
Og gaman að sjá að fötin hans Dags nýtast vel. Sérstaklega þar sem hann stoppaði svo stutt í mörgun þeirra.
Eins gott að hún eignist enga aðra uppáhalds frænku þarna úti. There can only be one!
Diljá
Já Iðunn græðir á að eiga svona stóran frænda, þó margir hafi sagt mér hvað ég eigi sætan "strák". Rosa fín föt.
Diljá mín - það er náttúrulega spurning hvað maður getur trónað lengi á toppnum þegar maður er á flækingi um heiminn. Þú verður kannski að vinna þig upp á hann aftur þegar þú kemur heim..... :-)
Skrifa ummæli