laugardagur, 17. maí 2008

Þambara vambara....

Hér á heimilinu eru ekki einungis við Helgi Pétur og Iðunn heldur búa hér einnig tveir kettir: Tala hin gulbröndótta og Beamish sem er svart og hvít skjöldóttur, ef kettir geta þá verið skjöldóttir. Þeim líst nú ekkert meira en svo á þetta "aðskotadýr" sem ég kom með frá Íslandi. Beamish má ekki sjá Iðunni, þá setur hann skottið milli lappanna og hrökklast burt, Tala er aðeins hugaðri en reynir þó að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Iðunn er hins vegar ofsalega hrifin af sambýlingunum og finnst allt svo spennandi og skemmtilegt sem kisurnar aðhafast. Ég býð ekki í hvernig þetta verður allt saman þegar hún fer að skríða!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha, það er alls ekki víst að þessar kisur verði nokkurn tímann barngóðar, kisurnar okkar hlaupa alla veganna ennþá í felur af minnstu víbendingu um börn!

Diljá stóra frænka