fimmtudagur, 22. maí 2008

In the jungle...the mighty jungle, the lion sleeps tonight....


Í fjarveru okkar, og í raun eftir allar rigningarnar í fyrra sumar, hefur litli garðurinn okkar breyst í frumskóg, þar sem hvorki er hægt að njóta sólar né grilla sumarmat. Í dag tók Helgi sig til og réðst til fyrstu atlögu við gróðurinn, með ansi hreint ágætum árangri. Hér að ofan ber að líta hann vígalegan - Guð hjálpi hverju því arfatetri sem verður á vegi hans!
Á meðan situr húsfreyja inni og fer yfir próf og barnið sefur svefni hinna réttlátu á hjónarúminu, með sumarhatt og alles, eins og sjá má í eplamyndunum.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Helgi, ertu ekki í fríi í Durham? Það er ekki frí að vinna í garðinum, svo sýnist mér í fljótu bragði þurfa stórar vinnuvélar til að eiga við þennan garð.

Helgi sagði...

Ég þarf aðeins að ryðja til svo að það sé hægt að sitja þarna úti og fá sér bjór.

Nafnlaus sagði...

Aha, það hlaut að vera eitthvað inni í þessum díl fyrir Helga. Bjór!