Í dag áskotnaðist Iðunni nýtt faratæki - stór og stæðilegur Silver Cross vagn í lit sem heitir British Racing Green - ekki er samt útséð um hvort slíkir vagnar fari hraðar yfir en vagnar í öðrum litum.Það stóð alltaf til að fjárfesta í svokölluðum svalavagni þegar við kæmum til Englands svo Iðunn gæti sofið lúrana sína útí garði að íslenskum sið. Rauða kerran er súpergóð og sú flottasta, liprasta og handhægasta sem við höfum séð en hún er ekki kannski svo skjólgóð ef sofa á í henni í miklum vetrarhörkum. Við skoðuðum því ýmsa möguleika og enduðum með að fjárfesta í þessum á Ebay, kostaði okkur 70 pund með beislum, flugna- og kattanetum, dýnu, sólhlíf osfrv. Við þurftum að sækja farkostinn til indælla hjóna í Whitley Bay, og nýttum því tækifærið í smá strandferð þó veðrið væri heldur hráslagalegt.
Nokkrar myndir er að finna á eplamyndasíðunni.
5 ummæli:
Silver Cross er nú ekkert smá flott og fínt verð sem þið hafið fengið. Það er ekki vafamál að þeir eru bestir í kuldanum, vel einangraðir og í góðum pokum á Iðunni eftir að sofa vel úti.
Jú við efumst ekki um að hún komi til með að sofa vel...aftur á móti er ég ansi viss um að Bretinn haldi okkur orðin snarvitlaus að parkera barninu úti í garði í öllum veðrum. Það verður áhugavert að sjá hve langt verður liðið á veturinn þegar fyrsta kvörtunin berst til barnaverndarnefndar......
Þetta er aldeilis flottur vagn,sem hæfir svona flottri stelpu. Sannkölluð eðalkerra. RollsRoyce barnavagnanna. Það verður ekki amalegt að rúnta um Bernards kastala í sumar.
Sú er spræk og flott í nýja farkostinum. Minnir á gamlar myndir af drottningarbörnum í Danmörku og Bretlandi fyrir nokkrum áratugum!
Nú er amma í Turninum kominn aftur heim og saknar þess að geta ekki skottast upp á Grundarstíg að knúsa stelpuna sína. Þetta hlýtur að flokkast undir illa meðferð á ömmum.
æ já 111.meðferð á ömmum ber vott um grimmt og guðlaust hjarta...
Skrifa ummæli