
Fyrst mamman er farin að vinna var ákveðið að prófa að gefa Iðunni smá graut að smakka, til að sjá hvernig hann færi í hana. Hún er líka orðin svo áhugasöm um allt sem aðrir eru að borða og drekka. Grauturinn bragðaðist bara vel. Stelpan smjattaði og sleikti útum og borðaði þó nokkrar teskeiðar. Sjáum svo til hvernig líkaminn litli bregst við. Sjálfstæðið virðist vera ansi sterkt í dömunni og vildi hún því helst fá að grípa skeiðina og stinga henni uppí sig sjálf sem er ekki á dagskrá alveg strax.
3 ummæli:
Hérmeð staðfestist að barnið beið engan skaða af grautnum og mun því grautartilraunum haldið áfram héðan í frá.
Dagur vill benda Iðunni á að grautarátið varir bara í smátíma, svo kemur grænmeti, fiskur, ávextir, kjöt og loks sætabrauð..... Þ.e. ef eitthvað svoleiðis er til í Durham.
Gott að vera dugleg að borða, Iðunn mín, svo þú verðir stór og sterk (nei ekki stór og feit).
Skrifa ummæli