
Hér að ofan má sjá Iðunni velta fyrir sér líkani af Homo habilis og sýna um leið sterkt nákvæmnistak, sem er eitt af einkennum mannapa. Eitt er víst að Iðunn er eflaust fróðari um veröldina, uppruna mannsins, almenna skynsemi o.s.frv. en aularnir sem setið hafa prófið í "Human Origins and Diversity" sem ég hef verið að fara yfir. Fyrsta árs nemar í Durham háskóla virðast upp til hópa vera heimskir, illa læsir, illa skrifandi, og algjörlega vanhæfir um að svara einföldustu spurningum á skýran og skiljanlegan hátt. Arg og garg...púst púst púst... ekki nema 30 próf eftir.
Í dag prófuðum við svo í fyrsta sinn að gera matarinnkaupinn okkar á netinu. Pössuðum okkur á að kaupa sem mest af þungum vörum sem okkur leiðist að burðast með úr hillu á kassa, útí bíl, og inní hús. Til dæmis pantaði húsbóndinn sér 20 lítra af freyðivatni (eða sparivatni, eins og hún Solveig vinkona kallar það), því árvatnið úr Tees sem rennur í kranana hérna í Barnard Castle er honum ekki að skapi. Tilraunin tókst með ágætum og hingað kom afskaplega kurteis maður með 8 (!) bakka af matvöru og fleiru, allt rétt afgreitt og í góðu ástandi. Þvílíkur lúxus. Ég skil ekkert í því hvers vegna ég hef ekki prófað þetta fyrr. Svo er ég viss um að það hljóti að vera vistvænna að einn maður keyri vörur til 20 neytenda, en að hver og einn bruni í búðina á sitt hvorum bílnum.
Annars er svo sem ekkert að frétta, netið er komið í lag eftir að fiktarinn Helgi kippti út forritinu sem sá um þráðlausu tenginguna, og var svo settur í bjórbann þar til hann hafði komið því í samt lag aftur. Þarf vart að taka fram hvað hann var fljótur að forgangsraða þeirri viðgerð á topp framkvæmdalistans.....
Toodiloo!
3 ummæli:
Helgi, ertu búin að með mission "garðsláttur"?
ég setti þetta
Í dag er amman í turninum frekar niðurdregin eftir að Diljá "besta frænka" flaug af stað í heimsreisuna sína í gær. Þá er gott að setjast við tölvuna og lesa um afrek Iðunnar og foreldra hennar. Myndirnar af henni glaðri og íbygginni koma ömmuni alltaf til að brosa eða jafnvel skella upp úr eins og myndin af henni að afhausa Homo habilis!
Skrifa ummæli