
Það er víst frægt í fjölskyldunni hans Helga hve hann kann illa að fara með eld....sögur herma að sem drengur hafi hann kveikt í heilum sófa og skrifborði afa síns...og síðan ég kynntist honum hefur hann kveikt aftur í því sama skrifborði, auk tölvuskjás og fleiri muna.....
Segja má að því hafi það e.t.v. verið að bjóða hættunni heim þegar Helga var treyst fyrir að kveikja upp í garðrusli hérna fyrir utan. Eins og sjá má af myndinni hér að ofan fór allt samt vel fram, þó innbú okkar og annarra í götunni angi reyndar eins og hangikjötskofi. Brennan er hluti af átaki Helga til að gera garðinn hæfann í sumarbjórdrykkju, og fer nú að líða að því að hann geti sest þar út og notið góðra veiga. Verst er spáð er rigningu á allra næstu dögum.
PS Vert er að bæta því við að Helgi er búinn að standa sig eins og hetja í allri garðvinnunni - röskur, vandvirkur og duglegur að drífa sig áfram - hann er greinilega súpereiginmaðurinn!
4 ummæli:
Mér líst ekki meira en svo á þetta. Dálítið trylltur glampi í augunum á stráknum. Vona að allar brennur verði búnar, þegar ég kem.
Við lofum brennulausum og bjór/hvítvínshæfum garði. Hlökkum öll voða mikið til að fá þig, en sérstaklega þó hún Iðunn.
Var Helgi líka settur í bjórbann þangað til hann væri búinn að laga til í garðinum? Hann virðist hafa verið í látlausu garðpúli síðan hann kom til Durham...Una þú náðir þér í eiginmann...ekki vinnumann!
Helgi er mjög sjaldan í bjórbanni.... Bjórkaupmenn í BC eru að minnsta kosti mjög ánægðir með viðskipti Íslendinga síðasta mánuðinn.... engin kreppa hjá bjórsölumönnum í okkar bæjarfélagi.
Skrifa ummæli