
Síðustu daga hefur hér verið hið yndislegasta sumarveður, þó mai sé einungis rétt byrjaður.....við vonum að það boði gott fyrir sumarið, en veðrið getur reyndar alls ekki orðið verra en það var hér í fyrrasumar. Við höfum aðallega bara tekið því rólega og notið þess að vera í fríi, enda strembin prófyfirferðartörn fram undan hjá húsfreyjunni. Keyptur var sólaráburður á alla fjölskylduna, Iðunn setti upp sólhattinn frá ömmu Titti, og Helgi dró fram U2 sólgleraugun sem ég er svo rosalega "hrifin" af.
Hið eina frásagnarverða sem á daga okkar hefur drifið er bílaævintýrið litla. Við sóttum bílinn okkar til Keith (samstarfsmanns míns) sem hafði geymt hann í hlöðunni sinni síðustu mánuði, og kom þá í ljós að hann var ekki bara rafmagnslaus, heldur var rafhlaðan gersamlega ónýt, svo fyrst þurftum við af stað að kaupa nýja. Svo var aftur reynt að halda af stað - mamma og Iðunn í broddi fylkingar á bílaleigubílnum, og pabbinn á eftir á okkar bíl. Allt í einu tökum við Iðunn eftir að pabbi er bara ekki lengur með okkur....við bíðum smá stund og loks sjáum við hann koma á 5km hraða eftir veginum. Hafði þá rafmagnsleysið leitt til einhvers galla í rafkerfinu sem varð til þess að bensíngjöfin hætti að virka. Eftir mikla mæðu tókst okkur þó að sigrast tímabundið á þeim vanda...en þá sáum við að ekki var nægt bensín á bílnum...svo við af stað á næstu bensínstöð, fengum lánaðan dunk og fengum 5 lítra af bensíní (sem by the way er dýrara hér en heima, svona ef Sturla langferðarbílstjóri slysast inn á þetta blogg), keyrðum aftur tilbaka, sóttum bílinn.......og aftur á bensínstöðina að skila dunknum og kaupa meira bensín. Þegar hér er komið sögu er Iðunn komin með ógeð á að sitja í bílnum, búin að óhreinka bleyjuna og móðirin ekki með aðra með sér, og allar búðir lokaðar því hér var frídagur. Ég keyrði því til Teesside airport (með viðkomu á enn einni bensínstöðinni)....og svo aftur tilbaka - samtals um klst akstur með barnið organdi í bílnum, bílinn hálf höktandi vegna rafmagnsvandans, og meiri hlutann af leiðinni var Helgi á öðrum bíl og barnið því aleitt og óhamingjusamt afturí. Vart þarf að taka það fram að við höfum ekki hreyft bílinn síðan!
Ofan á allar þessar svaðilfarir náði Iðunn svo í einhverja magapest í ferðinni sem veldur allt of tíðum hægðum með tilheyrandi roða og eymslum, svo ferðin sem ofan var lýst var enn verri en ella fyrir botninn. Við vonum bara að Weleda kremið góða hrífi á þessi eymsl eins og önnur og að maginn jafni sig fljótt aftur.
Donna kíkti aðeins til okkar í dag og leist henni sérlega vel á Iðunni - ég held að Iðunni hafi litist vel á hana líka, þó hún reki alltaf upp stór augu þegar fólk talar við hana á ensku sem hún skilur ekki bofs í...það er fyndið að hún gerir augljósan mun á ensku og íslensku....horfir undrunaraugum á mömmu sína þegar hún fer að buna einhverju út út sér á þessu hrognamáli.
Nóg í bili - Toodiloo frá okkur hér í Bretaveldi
5 ummæli:
úff...ekki góð svona þessi fyrstu kynni stelpunnar af nýja landinu!
Úfffff meira ævintýrið þarna í útlandinu !
En gott að þið eruð komin á leiðarenda og vona að restin af dvölinni verði ánægjulegri en þessi blessaði bíltúr :=)
ég sendi Sturlu ábendingu um bensínverðið, hann ætlaði að taka þetta til athugunar.
Amma finnur til med stelpunni sinni, vid erum hins vegar i godu yfirlaeti a naxos i flottri ibud med sundlaug (15 evrur a manninn!!!).
Puss och kram
Amma og Dilja
�etta var aldeilis �vint�raleg fer�. Barni� gr�tandi me� k�kableijuna, mamman alveg � tauginni og pabbinn me� f�nu s�lgleraugun � 5 km hra�a eftir hra�brautinni. �g lifi mig alveg inn � a�st�urnar.
Skrifa ummæli